fasteignasölur.is
Víkurgata 2
Opið hús í dag kl. 17:00–17:30
1 af 46

Um eignina

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Glæsilega nýlega rúmgóða og bjarta 159,9 fm endaíbúð á 2. hæð með frábæru útsýni við Víkurgötu 2 í Urriðaholti, Garðabæ. Tvö sér stæði í bílageymslu fylgja með íbúðinni.  Laust fljótlega.

AH: Skipti á minni eign kæmu til greina. 

Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 150,8 fm og sér geymsla í kjallara 9,1 fm, samtals 159,9 fm skv. HMS. Húsið sjálft er glæsilegt lyftuhús og telur einungis 10 íbúðir. Staðsetning er afar góð í hverfinu, í lokuðum botnlaga. 


Nánari lýsing: Forstofa með miklu skápaplássi. Glæsilegt vandað eldhús og rúmgóð  stofa/borðstofa í björtu alrými með frábæru útsýni og útgengt. á rúmgóðar s-v svalir. Eldhúsið er með hvítri innréttingu, tveir ofnar í vinnu hæð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, helluborð í eyju með viftu yfir. Glæsilegt baðherbergi með ljósri innréttingu og speglaskáp yfir, rúmgóð sturtuaðstaða með glerlokun. gluggi á baði. Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni í dag en auðvelt væri að bæta við því þriðja. Þriðja svefnherberginu var breytt í sjónvarpsherbergi. Rúmgott þvottaherbergi með innréttingu er innan íbúðar. Vandað ljóst parket á gólfum.

Ath: Eignin innanhúss er aðeins breytt frá teikningum. (en hægt að breyta aftur í fyrra horf ef vill)


Afar snyrtileg sameign með hjóla- og vagnageymslu. 
Bílageymsla þar sem tvö rúmgóð stæði fylgja með íbúðinni og búið að setja upp rafmagnshleðslu. 

Frábær staðsetning og útsýni m.a til sjávar, Vífilsstaðarvatnið ogSetbergsgolfvöllinn, einnig er  stutt í helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.
Þetta er áhugaverð eign sem vert er að skoða frekar.


Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is


Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Hraunhamar
139.500.000 kr.872 þ./m²
+99,6% á 9 árum
22. september 2017Fyrsta sala
69.900.000 kr.437 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Víkurgata 2

210 Garðabær
139.500.000 kr.872 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2016TegundFjölbýlishúsStærð159,9 m²Herbergi4BílskúrLyftaFasteignanúmerF235725523Fasteignamat122.050.000 kr.Brunabótamat116.380.000 kr.
Skráð hjá
Hraunhamar
HeimilisfangBæjarhraun 10, 220 HafnarfjörðurSími520-7500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 46 myndir

Upp ↑