fasteignasölur.is
Grandavegur 47
Opið hús 13. sept. kl. 14:20–14:50
1 af 46

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

**Opið hús sunnudaginn 13. september milli kl. 14:20 og 14:50**

Björt tveggja herbergja íbúð í lyftuhúsi að Grandavegi 47 ásamt stæði í bílageymslu. Mikið útsýni er frá íbúðinni. Húsið var tekið í gegn að utan 2019, steypuviðgert og málað. Yfirbyggðar svalir og fallegt útsýni til vesturs. Góð sameign sem hefur upp á að bjóða veislusal, sauna, heitan pott og sturtur. Húsvörður er í húsinu. Íbúðin er fyrir félagsmenn í Félagi eldri borgara (60 ára og eldri). 

Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax

Samkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 67,3m², þar af er stæði í bílageymslu skráð 23,1m². Ekki er að sjá að sérgeymsla íbúðar í kjallara sé inn í fermetratölu íbúðar.
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Yfirbyggðar svalir frá stofu. Í sameign er sérgeymsla og í bílahúsi er sérstæði merkt 01.02

Nánari lýsing:   
Komið er inn í íbúðina og ágætis forstofuskápur strax á vinstri hönd.  Á hægri hönd er eldhúskrókur sem er opin inn í stofu.  Ágætis eldhúsinnrétting,  hvit og beyki. Stofan með parketi á gólfi.  Gengið er út á yfirbyggðar svalir frá stofu. Svefnherbergið er innaf stofu með ágætis fataskáp og dúk á gólfi.  Baðherbergið er með góðri sturtu og hvítri innréttingu. Tengi fyrir þvottavél.

Í sameign á 10. hæð er samkomusalur með eldhúsi, snyrtingu, stórum svölum og þaðan er glæsilegt útsýni. Íbúar geta einnig pantað mat fyrir alla daga vikunnar sem kemur í samkomusalinn. Í sameign á 1. hæð er líkamsræktaraðstaða, sauna, búningsklefi og aðgangur að heitum potti á verönd með lokaðri skjólgirðingu. Hárgreiðslustofa er í húsinu.

Nánari uppl.
Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Eignamiðlun
59.900.000 kr.890 þ./m²
+73,6% á 7 árum
15. maí 2019Fyrsta sala
34.500.000 kr.513 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Grandavegur 47

107 Reykjavík
59.900.000 kr.890 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1989TegundFjölbýlishúsStærð67,3 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF20247984Fasteignamat61.800.000 kr.Brunabótamat32.790.000 kr.
Skráð hjá
Eignamiðlun
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 46 myndir

Upp ↑