fasteignasölur.is
Gautland 1
1 af 23

Um eignina

Björt og vel skipulögð 3 herbergja 79,5 fm íbúð á fyrstu hæð (hálf hæð frá götu) að Gautlandi 1, 108 Reykjavík. Fallegt útsýni til suðurs, björt og skemmtileg eign á þessum vinsæla stað í Fossvogsdalnum. Stutt er í alla helstu þjónustu eins og leikskóla og grunnskóla ásamt íþróttasvæði Víkings. 

Allar upplýsingar veitir Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali sveinn@remax.is sími 859-5559.

Nánari lýsing eignar:
Allt alrýmið, forstofa, eldhús, stofa og svefnherbergi eru með parketi á gólfi. Rúmgóður fataskápur í forstofu. 
Eldhúsið er með hvítum innréttingum og dökkum bekkjum. Hvítar flísar á milli efri skápa og borðplötu. Ofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. 
Stofan er afar björt með gluggum til suðurs og gengið út á mjög rúmgóðar svalir.
Frá forstofu/holi er gengið inn í svefnherbergi og baðherbergi. 
Barnaherbergið er með parketi á gólfi og afar rúmgott með stórum skápum. 
Hjónaherbergið er með parketi á gólfi, stórum skáp.
Baðherbergið er með flísum á gólfi, snyrtilegri dökkri innréttingu og salerni. Baðkar með sturtu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. 

Í sameign er finna sameiginlegt þvottahús, hjólageymslu og sérgeymslu fyrir eignina. Útgengt er út í garð af jarðhæð. 

Viðhald hússins undanfarin ár:
Múrviðgert og málað 2018-2019.
Skipt um gler allstaðar 2017-2018.
Nýtt handrið ásamt svalahurðum 2017-2018.
Dren viðgert umhverfis húsið. 
Þakið var málað árið 2020. 
Einnig er búið að samþykkja og fjármagna gluggaskipti á suðurhlið. 

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Verðsaga

4 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
69.900.000 kr.879 þ./m²
+5,9% á 3 árum
27. október 2023Þinglýstur kaupsamningur
66.000.000 kr.830 þ./m²
+48,3% á 4 árum
1. október 2019Þinglýstur kaupsamningur
44.500.000 kr.560 þ./m²
+100,5% á 11 árum
7. október 2008Þinglýstur kaupsamningur
22.200.000 kr.279 þ./m²
+7,2% á 2 árum
31. júlí 2006Fyrsta sala
20.700.000 kr.260 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Gautland 1

108 Reykjavík
69.900.000 kr.879 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1969TegundFjölbýlishúsStærð79,5 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20369271Fasteignamat70.550.000 kr.Brunabótamat44.950.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑