fasteignasölur.is
Borgarstígur 14
1 af 20

Um eignina

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:

Fallegt eldra sumarhús í góðu viðhaldi við Brókarvatn á Mýrum í Borgarbyggð.

Húsið samanstendur af forstofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, alrými með eldhúsi/borðstofu/stofu ásamt einangraðri geymslu með rafmagni, sem byggð er utaná húsið.

Birt stærð hússins er 46 fm og stendur það á 3.154 leigulóð með virkan lóðarleigusamning frá 2002 til 50 ára og gildir því til 2052.

Eignin er inni á lokuðu sumarhúsasvæði með aðgangsstýrðu hliði.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is

U.þ.b. 20 fm geymsluloft er yfir svefnherbergjum undir súð, eins er gott geymslupláss undir sólpallinum ásamt ofangreindri geymslu.

Húsið er timburhús sem stendur á steyptum súlum og tveimur steyptum burðarveggjum,
 er kynnt með rafmagnsofnum og hitakútur fyrir neysluvatn.

Aðgengi að Brókarvatni er gott þar sem fólk getur stundað vatnasport og veiðar á stöng.

Innbú er mikið til nýlegt og getur fylgt með að mestu leiti skv. nánara samtali við eigendur.

Nánari lýsing:
Gengið er inní rúmgóða forstofu með fatahengi og skáp. Tvö svefnherbergi eru til staðar, stærra herbergið er í dag með tvíbreiðu rúmi og minna herbergið er með tveimur svefnplássum í kojum, einbreiðum. Baðherbergið er með sturtu, vaski og vaskaskáp ásamt klósetti. Stofa, borðstofa og eldhúskrókur eru í opnu sameiginlegu rými. Í elhúsinu er eldavél með bakarofn og hellum, vaskur, pláss fyrir einfaldan ísskáp ásamt ágætist geymsluplássi í skápum og skúffum. Alrýmið er bjart með gluggum í þrjár áttir ásamt aðgengi út á sólpall sem er á tvær hliðar hússins, móti suðri og vestri. Einnig er gott bílastæði fyrir framan bústaðinn. Búið er að tengja 3ja fasa rafmagn í húsið.

Brókarvatn á Mýrum er í um 5-10 min aksturfjarlægð frá Borgarnesi, keyrt út Snæfellsveg (56) frá Borgarnesi og er svæðið merkt Selhóll á hægri hönd af veginum. Í Borgarnesi er alla helstu þjónustu að finna, verslanir, sundlaug og íþróttaaðstöðu, veitingastaði, golfvöll ásamt viðveru slökku-, sjúkra- og löggæsluliðs. 

Upplýsingar um rekstrakostnað má nálgast hjá fasteignasala.


Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is


 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignalausnir ehf
24.900.000 kr.546 þ./m²
+60,6% á 6 árum
17. september 2020Fyrsta sala
15.500.000 kr.340 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Borgarstígur 14

311 Borgarnes (dreifbýli)
24.900.000 kr.546 þ./m²
Sumarhús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2003TegundSumarhúsStærð45,6 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22658185Fasteignamat22.400.000 kr.Brunabótamat28.450.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignalausnir ehf
HeimilisfangHamravík 36, 112 ReykjavíkSími899-0720

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑