fasteignasölur.is
Lækjarvegur 5
1 af 26

Um eignina

Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:

Gott eldra sumarhús á stórri og gróinni eignarlóð, með fallegu útsýni, í Stekkjarási í Borgarbyggð.

Um er að ræða 45,6 fm sumarhús með tveimur svefnherbergjum, á stórri eignarlóð (9000 fm), með miklum gróðri og staðsett utan í hlíð með góðu skjóli og útsýni móti suðri.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is

Húsið er byggt 1998 skv. skráningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, stendur töluvert frá jörðu, á steyptum stöplum, með góðri verönd sem nær allan hringinn og hefur húsið fengið jafnt og gott viðhald.

Síðustu ár var sett ný klæðning að hluta til að utan, búið að endurnýja nokkra glugga (timbur og gler), húsið vel málað. Einnig er búið að bæta við einangrun veggja og setja nýja timburklæðningu að innan. 

Við lóðamörk er nýtt vatnsinntak og fylgir allt innbú utan persónulegra muna.

Skv. eigendum er það helsta sem þurfi að huga að er að skipta um járn, pappa og bæta við einangrun í þakið í leiðinni (þótt ekki sé um neinn leka að ræða).

Kynding er með nýlegum rafmagnsofnum og hitakútur fyrir heitt neysluvatn.

Sumarhúsið er í ca. 15 mínútna akstursfjarlægð frá Borganesi, stutt er einnig í næstu sundlaug og svo eru hægt að fara í golf á golfvellinum Hamri við Borganes eða Glanna sem staðsettur er rétt við Bifröst.

Sumarhúsafélag er á svæðinu sem sér um hlið, vegi og mokstur þegar snjór kemur.

Verið er að greiða aukalega sérstakt félagsgjald í framkvæmdarsjóð til lagfæringar á vegum, til í dag u.þ.b. 9 mkr.

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is


 

Lækjarvegur 5

311 Borgarnes (dreifbýli)
24.900.000 kr.546 þ./m²
Sumarhús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1998TegundSumarhúsStærð45,6 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF223344712Fasteignamat24.900.000 kr.Brunabótamat21.200.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignalausnir ehf
HeimilisfangHamravík 36, 112 ReykjavíkSími899-0720

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑