fasteignasölur.is
Skógarás 5
1 af 26

Um eignina

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:

Fallegt og mikið endurnýjað sumarhús í Úthlíð í Biskupstungum í Bláskógarbyggð.

Um er að ræða 64 fm sumarhús, byggt 1995, timburhús sem stendur á steyptum stöplum.

Eignin samanstendur af forstofu, þremur svefnherbergjum, baðherbergi, eldhúsi/borðstofu/stofu og til hliðar við inngang í húsið er sérinnangengt í þrjú viðbótarrými af palli, verönd er á tvo vegu við húsið, heitur pottur og gott bílastæði.

Sumarhúsið er á lokuðu sumarhúsasvæði með aðgengi um símahlið.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is

Nýlegar endurbætur og athugasemdir:
  • Rafmagn - er endurnýjað og ný rafmagnstafla.
  • Kalt vatn - endurnýjaðar lagnir frá inntaki inn að tengipunktum í húsi.
  • Heitt vatn - ný lagnagrind við inntak og lagnir endurnýjaðar að tengipunktum í húsi.
  • Klæðning að innan - einangrun endurnýjað að miklu leiti og sett ný timburklæðning að innan.
  • Innréttingar og gólfefni - eru að mestu leiti nýjar (nýlegt eldhús, nýlegt baðherbergi, hurðir og gólfefni).
  • Þak - eldra þak í góðu lagi, yfirfarið, málað, endurnýjaðar flasningar og þakkantur yfirfarinn og endurnýjaður eftir þörfum.
  • Heitur pottur - er eldri skel með stálloki á hurðarpumpum, í lagi og virkar vel.
  • Verönd - er búið að þvo upp og gera klárt til að bera á viðinn.
  • Aukarými - þvottahús, baðhús og geymsla er á lokametrum í frágangi og verður afhent fullklárað eftir endurbætur.

Eignin stendur á 3.802 fm leigulóð úr landi Úthlíðar í Biskupstungum.

Núverandi lóðarleigusamningur tók gildi 2019 og gildir til 2047. Kaupendi mun yfirtaka núverandi samning með samþykki landeiganda.

Úthlíð í Biskupstungum er vinsælt sumarhúsasvæði, þaðan er stutt að fara á áhugaverða staði við Geysi, Gullfoss og Þingvelli. Svæðið býður upp á fjölbreytta útivist, golf, veiði, gönguleiðir og góða þjónustu, auk verslunar og veitingastaðar. Aðeins um 80–90 mínútna akstur er frá höfuðborgarsvæðinu, sem gerir Úthlíð að eftirsóttum stað fyrir sumarhúsaeigendur, hvort sem er yfir sumarið eða á veturna.

Nánari upplýsingar um þjónustu og fleira í Úthlíð, smella á hlekk.

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is


 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignalausnir ehf
44.900.000 kr.704 þ./m²
+149,4% á 7 árum
31. júlí 2019Fyrsta sala
18.000.000 kr.282 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Skógarás 5

806 Selfoss (dreifbýli)
44.900.000 kr.704 þ./m²
Sumarhús3 svefn · 2 bað
Byggingarár1995TegundSumarhúsStærð63,8 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22196877Fasteignamat31.050.000 kr.Brunabótamat43.810.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignalausnir ehf
HeimilisfangHamravík 36, 112 ReykjavíkSími899-0720

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑