fasteignasölur.is
Stórarjóður (Sumarhús Húsafelli) 11
1 af 24

Um eignina

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:

Mikið endurnýjað sumarhús með hitaveitu á mjög gróinni lóð í Húsafelli.

Um er að ræða 43,3 fm sumarhús, byggt 1982, með tveimur svefnherbergjum, góðu eldhúsi, gestasnyrtingu og útisturtu með blöndunartæki.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is

Eignin er á 1200 fm gróinni leigulóð í rólegri götu og landeigandi er fjölskyldan sem rekur Húsafellssvæðið og þjónustar.

Hitaveitan er nýlega tekin inn og ofnar eru nánast nýir.

Svefnherbergin ásamt salerni var endurnýjuð, klæðning og einangrun. Einnig var sólpallur og útisturta gerð 2020. Kominn er ljósleiðari inn í húsið.

Skv. landeiganda má byggingarmagn á umræddri lóð vera allt að 120 fm alls að meðtalinni geymslu sem má að hámarki vera 15 fm.

Byggingarnefndarteikningar með stækkun upp í 77,4 fm er klárar í kerfinu.

Mest allt innbú getur fylgt með utan persónulegra muna skv. nánara samtali.

Rekstrarkostnaður kemur fram á söluyfirliti, pantið það hjá fasteignasala á hrannar@lifumheima.is

Nánari lýsing:
Gengið er inn í húsið um hurð af verönd, komið inn í eitt opið rými þar sem eldhús, borðstofa og stofa eru saman. Eldhús er rúmgott með góðu skápa- og bekkjaplássi. Lítið helluborð, örbylgjuofn og lítill ísskápur. Ágætis stækkanlegt matarborð, rúmgóður sófi í stofu og sjónvarp. Svefnherbergin eru tvö, annað með tvíbreiðu rúmi og hitt með teimur einbreiðum rúmum. Fataskápar í báðum herbergjum. Eingöngu er gestasalerni innandyra en sturta er utandyra. Verönd framan við húsið og upp með annarri hlið. Ágætis bílastæði og eingöngu bústaðir til beggja hliða, aftan við húsið er gengið út í óspillta náttúruna. 

Í Húsafelli er hótel, veitingastaður, verslun, sundlaug, golfvöllur og náttúruböðin Giljaböð.  Húsafell er vinsæl náttúruperla með góðum og fjölbreyttum útivistarmöguleikum.  Þaðan er stutt í Hraunfossa, Reykholt, Deildartunguhver, baðstaðinn Kraumu, íshellinn í Langjökli („Into the Glacier“) og hraunhellinn Víðgelmi („The Cave“).

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is


 

Stórarjóður (Sumarhús Húsafelli) 11

320 Reykholt (Borgarfirði)
24.900.000 kr.575 þ./m²
Sumarhús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1982TegundSumarhúsStærð43,3 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF210841118Fasteignamat25.050.000 kr.Brunabótamat21.800.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignalausnir ehf
HeimilisfangHamravík 36, 112 ReykjavíkSími899-0720

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑