fasteignasölur.is
Hjallavegur 27
Nýtt
1 af 58

Um eignina

Miklaborg fasteignasala og Ingimundur Ingimundarson lgf. kynna til sölu Hjallaveg 27, fallega og vel skipulagða 76,3 fm þriggja herbergja íbúð á neðri hæð í snyrtilegu og vel við höldnu tvíbýlishúsi. Eignin er með sérinngangi og aðgengi að virkilega fallegum garði við húsið.


Frábær fyrstu kaup, eign sem vert er að skoða.


Allar nánari upplýsingar gefur Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða ingimundur@miklaborg.is

Samkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 76,3 fm, Íbúðin er skráð 72,3 fm og geymsla innan íbúðar 4 fm.

Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og geymslu.
Auk þess er aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi.

Gengið er inn um sérinngang í flísalagða forstofu. Við endann á forstofu er gengið inn í svefnherbergi með fataskáp, harðparket á gólfi. Frá forstofu er komið inn í hol með harðparketi.

Baðherbergi er með sturtu, innréttingu og flísalögðu gólfi.

Eldhús er með eikarinnréttingu og harðparketi á gólfi. Inn af eldhúsi er góð sérgeymsla. Frá eldhúsi er jafnframt innangengt í rúmgott sameiginlegt þvottahús.

Hjónaherbergi er rúmgott, með harðparketi og góðum fataskáp.

Stofan er björt og rúmgóð með harðparketi. Úr stofu er gengið beint út í garð hússins. Garðurinn er virkilega fallegur, gróinn og skjólsæll með hellulögðu svæði, grasflöt og trjágróðri og býður upp á góða útiveru.


Hjallavegur 27 er vel skipulögð þriggja herbergja eign með sérinngangi, tveimur góðum svefnherbergjum og beinu aðgengi úr stofu að fallegum garði auk þess sem örstutt gögnufæri er í Laugardalinn og alla þá þjónustu sem þar er að finna.


Allar nánari upplýsingar gefur Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða ingimundur@miklaborg.is

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
64.900.000 kr.851 þ./m²
+35,5% á 5 árum
26. október 2021Þinglýstur kaupsamningur
47.900.000 kr.628 þ./m²
+37,2% á 4 árum
30. ágúst 2017Fyrsta sala
34.900.000 kr.457 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hjallavegur 27

104 Reykjavík
64.900.000 kr.851 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1946TegundFjölbýlishúsStærð76,3 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2020130Fasteignamat59.500.000 kr.Brunabótamat39.250.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 58 myndir

Upp ↑