fasteignasölur.is
Borgartún 24
Opið hús á morgun kl. 17:00–17:30
1 af 20

Um eignina

Háborg fasteignasala, Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali og Kristín Högna nemi í löggildingu kynna í einkasölu fallega og vel skipulagða íbúð með sérinngangi úr inngarði og suðursvölum.
Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega!


Eignin er skráð 81,5 fm að stærð, 73,5 fm íbúð og 8 fm geymsla. 
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, baðherbergi og tvö svefnherbergi, henni fylgja svalir sem snúa til suðurs. 

Í eldhúsi er stór og vönduð innrétting frá Nobilia. Innréttingin er með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Heimilistæki eru frá Siemens.
Í baðherbergi er góð innrétting, spegill með ljósi, “walk in” sturta, upphengt wc og handklæðaofn. Þar er einnig gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.  

Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, fataskápar eru í báðum herbergjum. 

Ljóst harðparket er á gólfi, nema á baðherbergi, þar eru flísar. 

Húsið er byggt árið 2024, staðsteypt og klætt með viðhaldsléttri klæðningu. Það er byggt utan um sameiginlegan inngarð og á 4. og 6. hæð eru sameiginlegir þakgarðar íbúa. 

Nánari upplýsingar veitir Kristín Rós Magnadóttir, lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á kristin@haborg.is og Kristín Högna nemi í löggildingu, sími 895-8511 og kristinhogna@haborg.is.
 

 

Borgartún 24

105 Reykjavík
79.900.000 kr.980 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2024TegundFjölbýlishúsStærð81,5 m²Herbergi3InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF25183353Fasteignamat75.700.000 kr.Brunabótamat51.550.000 kr.
Skráð hjá
Háborg fasteignasala
HeimilisfangGrensásvegur 1, 6. hæð, 108 ReykjavíkSími497-0031

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑