fasteignasölur.is
Höfðastígur 20
1 af 23

Um eignina

LANDMARK kynnir:  Glæsileg 4ra herbergja,  151,3 fm efri sérhæð með bílskúr í tvíbýlishúsi með miklu útsýni til allra átta í Bolungarvík.  Íbúðin er mikið endurnýjuð á afar smekklegan hátt.  Íbúðarrými 119 fm og bílskúr 32,3 fm. Gólfhiti.  
ÍBÚÐIN GETUR VERIÐ AFHENT VIÐ KAUPSAMNING


*** Bókið skoðun hjá Freyju Rúnars Lgf, s. 694-4112 eða freyja@landmark.is ***

Forstofa er á 1. hæð og þaðan er stigi upp í íbúðina.
Hol með flísum á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergin eru þrjú og öll flísalögð með fataskápum.
Stofan er björt og falleg með flísalagt gólf og þaðan er útgengt út á rúmgóðar suðursvalir með útsýni.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu með innbyggðum tvöföldum ísskáp og frysti ásamt eldhúseyju með span-helluborði.  Borðkrókur í eldhúsi.
Þvottahús með innréttingu er inn af eldhúsi.
Baðherbergið er flísalagt með fallegri innréttingu og steyptri sturtu með glervegg.

Bílskúrinn er rúmgóður með rafdrifinni bílskúrshurð og annarri hurð norðan meginn. Möl í bílaplani framan bílskúrs.

Sér rafmagns- og hitamælir fyrir hvora eign.  Lóðin er stór og snyrtileg.

Upplýsingar veita:
Freyja Rúnarsdóttir Lgf í síma 694-4112 eða freyja@landmark.is
Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is



 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
50.900.000 kr.336 þ./m²
+6,3% á 3 árum
22. júlí 2023Þinglýstur kaupsamningur
47.900.000 kr.317 þ./m²
+283,2% á 3 árum
20. október 2020Þinglýstur kaupsamningur
12.500.000 kr.83 þ./m²
+8,3% á 7 árum
29. júlí 2013Fyrsta sala
11.545.000 kr.76 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Höfðastígur 20

415 Bolungarvík
50.900.000 kr.336 þ./m²
Hæð3 svefn · 1 bað
Byggingarár1966TegundHæðStærð151,3 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF21214788Fasteignamat35.150.000 kr.Brunabótamat64.810.000 kr.
Skráð hjá
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
HeimilisfangHlíðasmári 2, 6. hæð, 201 KópavogurSími512-4900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑