fasteignasölur.is
Huldubraut 7
1 af 17

Um eignina

Lind fasteignasala, Herdís Sölvína Jónsdóttir og Sigrún Ragna löggiltir fasteignasalar kynna 100,6 fm. 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á fyrstu hæð í glæsilegu nýlegu fjórbýli við Huldubraut 7, Kársnesi, Kópavogi.
Íbúðinni fylgir stór og skjólgóð um 50 fm. verönd í suður.
Eignin er laus við kaupsamning 


Eignin skiptist í anddyri, baðherbergi, geymslu/þvottahús innan íbúðar, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými, hjónaherbergi og svefnherbergi.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun hjá:
Sigrúnu Rögnu löggiltur Fasteignasali 
sími 7737617 Sigrun@fastlind.is


Nánari lýsing eignar:
Anddyrið er rúmgott með flísum á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með hvítri innréttingu, handklæðaofni, walk-in sturtu með glerþili 
Eldhús með hvítri innréttingu og eyju sem hægt er að sitja við. Innfelldur ísskápur og uppþvottavél í innréttingu.
Stofa, eldhús og borðstofa í einu samliggjandi opnu og björtu rými með parketi á gólfi, aukin lofthæð og gólfsíðir gluggar. Útgengt er á um 50 fm. viðarverönd.
Viðarverönd er er um 50 fermetrar að stærð til suðurs frá stofu.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. 
Svefnherbergi II er bjart með fataskáp og parketi á gólfi.
Geymsla/þvottahús  er innan íbúðar.
Bílastæði merkt B02 fylgir eigninni.


Gólfhiti er í allri íbúðinni, harðparket á gólfum, en votrými eru flísalögð.
Hjólageymsla í sameign.
Tengi fyrir rafbíla á lóð.


Staðsetning:
Góð staðsetning  í grónu hverfi á Kársnesinu við sjávarsíðuna sem skartar fallegri náttúru og fjölbreyttum afþreyingarmöguleikum. Úrval af leik- og útivistarsvæðum fyrir alla fjölskylduna. Spennandi hjóla-, hlaupa- og göngustígar á Kársnesinu, auk góðra samgangna við nærliggjandi hverfi.

Fyrirhugað er að taka í notkun nýjan Kársnesskóla og leikskóla í Holtagerði haustið 2025.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum:
Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

** Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
** Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
** Frítt söluverðmat á þinni eign hér eða hjá Herdís Sölvína Jónsdóttir, sími 862 0880herdis@fastlind.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
 

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
97.000.000 kr.964 þ./m²
−63,4% á 6 árum
12. febrúar 2021Þinglýstur kaupsamningur
265.000.000 kr.591 þ./m²
+387,1% á 2 árum
30. október 2018Þinglýstur kaupsamningur
54.400.000 kr.383 þ./m²
+29,5% á 2 árum
12. desember 2016Fyrsta sala
42.000.000 kr.295 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Huldubraut 7

200 Kópavogur
97.000.000 kr.964 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2021TegundFjölbýlishúsStærð100,6 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF206293563Fasteignamat80.050.000 kr.Brunabótamat66.600.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑