fasteignasölur.is
Sunnusmári 7
Opið hús 13. sept. kl. 16:00–17:00
1 af 18

Um eignina

Lind fasteignasala og Sigrún Ragna löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu eignina Sunnusmári 7, 201 Kópavogur, nánar tiltekið eign merkt 07-03, fastanúmer 251-9958 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Um er að ræða afar bjarta og vandaða 4ra herbergja íbúð, á efstu hæð.  Aukin lofthæð.. 
Heildarstærð er 111,2 fermetrar, íbúðinni fylgir 12,6 fermetra geymsla.
Svalir snúa til suðurs og eru rúmgóðar með svalalokun og nýtast því sem notalegt aukarými stóran hluta ársins.
Skipulag eignarinnar er einstaklega gott með rúmgóðu alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda fallega heild.  
Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, alrými með eyju stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi.
Anddyri: Rúmgott anddyri  með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Þvottahúsið er inn af forstofunni og er með góðri innréttingu, góðri vinnuaðstöðu, búið að bæta við rúmgóðum efri skápum.
Baðherbergi: Ljósar flísar  á gólfi og hluta veggja. walk-in sturta með hertu gleri, hanklæðaofn og vegghengdu salerni.
Innrétting, granít á borði, speglaskápur. Útloftun. 
Eldhúsið er einstaklega glæsilegt og vandað, þar sem hugað hefur verið að bæði útliti og notagildi.
Rúmgóð eldhúseyja, hefur verið stækkuð og bætt við skúffum sem skapa gott geymslupláss.
Eyjan er klædd glæsilegu graníti sem nær niður í gólf á hliðum hennar, og gefur rýminu fágað og heilsteypt yfirbragð. sama granít prýðir vegginn fyrir ofan vaskinn og tengir þannig efnisvalið fallega saman.Tæki í eldhúsi eru:  m.a. ofn í vinnuhæð,uppþvottavél, Spanhelluborð í eyju, eyjuháfur yfir helluborði.  
Vandað og tímalaust eldhús sem myndar glæsilega umgjörð um hjarta heimilisins.og gefur
skemmtilega tengingu við stofu og borðstofu.
Stofa/borðstofa 
Í björtu og rúmgóðu alrými, stórir  gluggar gefa rýminu einstaka birtu og fallegt útsýni yfir hluta Kópavogs, útgengi á rúmgóðar svalir  með svalalokun og nýtast því sem notalegt aukarými stóran hluta ársins.
Hjónaherbergið er rúmgott með parketi á gólfi, rúmgóðum innbyggðum skápum og glugga til suðurs.
Herbergi ll  gott herbergi  með parketi á gólfi og innbyggðum fataskápum.
Herbergi lll  Rúmgott með parket á gólfi og innfelldum fataskápum. nýtist í dag sem sjónvarpsherbergi.
Björt og falleg eign á góðum stað þar sem örstutt er í alla þjónustu.

Sérgeymsla í sameign 12,6 fm að stærð merkt 0116  auk sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Bílageymsla: Íbúðinni fylgir stæði  í lokaðri bílageymslu.merkt 04C06.

Sameign er flísalögð, ytri forstofa og myndavéladyrasími. Teppalagður stigagangur og lyfta í sameign. Rafmagnsopnun á útidyrahurðum í sameign.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali í síma 7737617  eða sigrun@fastlind.is
Ef þú ert í söluhugleiðingum.  Endilega heyrðu í mér, það eru alltaf að seljast eignir, og afhverju ekki þín eign.

Allir Kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar, með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 8 samstarfsaðilum, m.a.: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Ísleifur Jónsson, Parki, Betra bak og Dorma. 
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
110.800.000 kr.996 þ./m²
+19,3% á 2 árum
20. júní 2024Fyrsta sala
92.900.000 kr.835 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Sunnusmári 7

201 Kópavogur
110.800.000 kr.996 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2023TegundFjölbýlishúsStærð111,2 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF25199585Fasteignamat91.550.000 kr.Brunabótamat77.300.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑