fasteignasölur.is
Hafnarbraut 12
1 af 34

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala og Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali kynna 3 herbergja íbúð (83,2fm2) á jarðhæð með rúmgóðum sérafnotareit við Hafnarbraut 12. Íbúðin er vel skipulögð og skiptist í anddyri, eldhús og borðstofu, stofu, baðherbergi og tvö rúmgóð svefnherbergi. Sérgeymsla og bílastæði með hleðslustöð fylgir eigninni í bílakjallara.

Nánari lýsing:
Anddyri
með flísum á gólfi og góðum fataskápum.
Eldhús með hvítri innréttingu sem nær upp í loft, spanhelluborð, ofn og innbyggður ísskápur/frystir ásamt innbygðri uppþvottavél. Parket á gólfi
Borðstofa/stofa myndar opið rými með eldhúsi. Parket á gólfi. Gengið er út á sérafnotareit úr stofu sem er 13,8fm2. Fallegur timburpallur og steyptir skjólveggir.
Svefnherbergi: Fataskápur. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Stórir fataskápar. Parket á gólfi.
Baðherbergi. Góð innrétting með fínu skápaplássi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gler-sturtuklefi og upphengt salerni. Fallegar flísar á gólfi og veggjum.

Sér geymsla (6,4fm2) í kjallara er beint fyrir aftan bílastæði eignarinnar.
Sér bílastæði merkt E14 er með hleðslustöð.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.

Rólegt hverfi með fallegum gönguleiðum og stutt er í skóla, leikskóla, Sky Lagoon og alla helstu þjónustu. Auk þess mun Fossvogsbrúin sem er í byggingu tengja svæðið við útivistarperlur Nauthólsvíkur og Öskjuhlíðar. 

Nánari upplýsingar veitir Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 866 1763 eða á dagrun@betristofan.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Hafnarbraut 12

200 Kópavogur
74.900.000 kr.900 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2021TegundFjölbýlishúsStærð83,2 m²Herbergi3BílskúrFasteignanúmerF251084011Fasteignamat73.350.000 kr.Brunabótamat57.100.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑