Um eignina
Í byggingu eru 8 íbúðir í 3. hæða kjarna rétt við ströndina í San Pedro del Pinatar, Macao Playa 2.
Staðsetningin er frábær, nálægt ströndinni og með flesta þjónustu í göngufæri. Íbúðirnar eru 2. svefnherbergja með 2. baðherbergjum og allar með aðgangi að fallegri sameiginlegri sundlaug á efstu hæð. Í bílakjallara er svo hægt að kaupa aukalega einkastæði og geymslu fyrir 20.000 evrur.
Íbúðirnar eru glæsilegar og vel hannaðar og er fullbúið eldhús með tækjum innifalin ásamt fullbúnum baðherbergjum með hágæða frágangi.
2. íbúðir eru á jarðhæð, 3. íbúðir á miðhæð og 3. íbúðir á efstu hæð. Þær eru frá 72 fm til 83 fm.
Íbúðir á jarðhæð eru með einkagarði (11 fm eða 40 fm.)
Íbúðir á miðhæð og efstu hæð eru svo með um 8 fm. svölum.
Verð frá 277.400 til 297.400 evrur + 13-15% kostnaður.
Til afhendingar í Desember 2027.
San Pedro del Pinatar, Spánn
Allar 7 myndir
Upp ↑





