fasteignasölur.is
Villamartín, Spánn
1 af 15

Um eignina

TIL SÖLU – GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS Í LOS DOLSES.

Stórt og glæsilegt einbýlishús með einkasundlaug, stórum þaksvölum og innréttuðum kjallara á frábærum stað í Los Dolses svæðinu á Orihuela Costa.

Hér er um að ræða einstaklega áhugaverða eign fyrir þá sem vilja hafa gott pláss, njóta sólarinnar og hafa alla helstu þjónustu og afþreyingu innan þægilegrar fjarlægðar.

Húsið er á einni hæð, auk rúmgóðs og fullbúins kjallara, og býður því upp á fjölmarga möguleika fyrir fjölskyldu, gesti eða þá sem vilja hafa sérrými fyrir vinnu, áhugamál eða afþreyingu.

Á aðalhæðinni tekur á móti þér bjart og rúmgott alrými þar sem eldhús og stofa mynda fallega heild. Stórar opnanlegar rennihurðir tengja innirýmið beint við veröndina og einkasundlaugina – fullkominn staður til að njóta spænsku sólarinnar, hvort sem er í rólegum morgunverði eða með fjölskyldu og vinum.

Á aðalhæðinni eru tvö svefnherbergi og þrjú baðherbergi.

Í kjallaranum er síðan að finna þrjú svefnherbergi til viðbótar, tvö baðherbergi, rúmgott stofurými ásamt þvottahúsi og geymslu. Kjallarinn gefur húsinu því óvenjulega mikið notagildi og býður upp á að nýta rýmið á fjölbreyttan hátt.

Eignin er samtals 222 m² og stendur á 245 m² lóð. Á lóðinni er rúmgóð verönd með einkasundlaug auk bílastæðis innan lóðar.

Á efstu hæð eru svo rúmgóðar þaksvalir sem ná yfir allt húsið, þar sem hægt er að njóta sólar, útsýnis og hins frábæra loftslags Costa Blanca.

Staðsetningin er stór kostur. Stutt er í verslanir, veitingastaði, kaffihús og alla helstu hversdagsþjónustu. Einnig er aðeins stutt í hina vinsælu Zenia Boulevard verslunarmiðstöð og fjölmargar fallegar sandstrendur Orihuela Costa.

HELSTU ATRIÐI:

• 222 m² hús

• 245 m² lóð

• 5 svefnherbergi

• 5 baðherbergi

• Innréttaður kjallari

• Rúmgott stofurými í kjallara

• Einkasundlaug

• Stór verönd

• Þaksvölur yfir allt húsið

• Bílastæði innan lóðar

• Frábær staðsetning í Los Dolses rétt við Villamartín golfvöllinn og Villamartín Plaza.

• Stutt í verslanir, veitingastaði og þjónustu

• Stutt í Zenia Boulevard og fallegar strendur Orihuela Costa

Eign sem býður upp á mikið rými, fjölbreytta nýtingarmöguleika og frábært umhverfi – hvort sem leitað er að heimili á Spáni, sumarhúsi eða fjárfestingareign.

Villamartín, Spánn

1053 Spánn - Costa Blanca
83.538.000 kr.378 þ./m²
Einbýlishús5 svefn · 5 bað
TegundEinbýlishúsStærð221 m²Herbergi7FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090

Allar 15 myndir

Upp ↑