Um eignina
Í byggingu eru flott einbýli á einni hæð auk þaksvala rétt við bæinn Roldán í Murcia héraði og aðeins um 20 mínutum frá ströndum Mar Menor í Los Alcazares á svæði sem heitir "El Alba Mediterranean Resort" og er í raun aflokað svæði með mismunandi eignum, glæsilegu sameiginlegu útivistarsvæði, grænum svæðum fyrir börn, leiksvæði og svo hinum glæsilega klúbbi La Palapa en þar má finna veitingastað, sundlaugarsvæði sem líkist strönd, padel velli og almenna aðstöðu til útivistar.
Húsin eru frá 78 fm. ti 123 fm. og eru 2. eða 3. svefnherbergja og 2. baðherbergja. Útieldhús er á þaksvölum. Einkasundlaug er um 16 fm.
Í kjarnanum sem er aflokaður er svo glæsilegt, sameiginlegt útisvæði með sundlaug, sólbaðsaðstöðu og grænum svæðum fyrir fullorðna og börn.
Örstutt er á golfvelli á svæðinu.
Nánari upplýsingar um La Palapa hér
Verð frá 312.000 til 417.000 evrur + 13-15% kostnaður.
Til afhendingar í Nóvember 2026.
Roldán, Spánn
Allar 12 myndir
Upp ↑










