Um eignina
Einstakar efri og neðri sérhæðir í byggingu í grónu hverfi rétt um 220 metrum frá fallegu ströndinni í La Mata.
Hér er staðsetningin alveg frábær, rétt við eina af fallegri ströndum Miðjarahafsins og þar sem flest er í göngufæri.
Íbúðirnar eru sérlega glæsilegar en einungis eru 20 eignir í boði, 10 neðri og 10 efri sérhæðir.
Um er að ræða 2. eða 3. svefnherbergja og 2. baðherbergja sérhæðir með afar vönduðum innréttingum, opnu skipulagi og miklu plássi.
Neðri sérhæðirnar eru með einkagarði sem er frá 61 fm. til 86 fm. en efri sérhæðirnar eru með þaksvölum sem eru um 71 fm.
Stæði og geymsla í lokuðum bílakjallara og glæsilegur sameiginlegur sundlauga garður með sólbaðsaðstöðu og grænum svæðum til útivistar.
Frábærar eignir við strönd, mjög miðsvæðis og rétt við íþróttasvæði Torrevieja, stóra Föstudagsmarkaðinn, Habaneras verslunarmiðstöðina og stóru Carrefour verslunina.
Siemens tæki í eldhúsi innifalin ásamt aircon tæki (heitt og kalt).
Verð frá 565.00 til 825.000 evrur + 13-15% kostnaður.
Til afhendingar í Janúar 2027.
Torrevieja, Spánn
Allar 15 myndir
Upp ↑













