Um eignina
Í byggingu eru falleg einbýli, rétt við bæinn Roldán í Murcia héraði og aðeins um 20 mínutum frá ströndum Mar Menor í Los Alcazares en svæðið heitir "El Alba Mediterranean Resort" og er í raun aflokað svæði með mismunandi eignum, glæsilegu sameiginlegu útivistarsvæði, grænum svæðum fyrir börn, leiksvæði og svo hinum glæsilega klúbbi La Palapa en þar má finna veitingastað, sundlaugarsvæði sem líkist strönd, padel velli og almenna aðstöðu til útivistar.
Um er að ræða einbýli á einni hæð með einkasundlaug, bílastæði innan lóðar og þaksvölum með útieldhúsi.
Hvert einbýli er með 2. svefnherbergi og 2. baðherbergi, hönnuð í nútímalegum stíl með opnu skipulagi sem samanstendur af innréttuðu eldhúsi og stofu / borðstofu.
Örstutt er á golfvelli á svæðinu.
Nánari upplýsingar um La Palapa hér
Verð frá 262.900 til 299.900 evrur + 13-15% kostnaður.
Til afhendingar í September 2027.
Roldán, Spánn
Allar 15 myndir
Upp ↑













