fasteignasölur.is
Ciudad Quesada, Spánn
1 af 14

Um eignina

Glæsilegt og mikið endurnýjað einbýli á einni hæð í Ciudad Quesada.

Í einkasölu bjóðum við þessa einstöku eign sem staðsett er á eftirsóttum stað í Ciudad Quesada, rétt við La Laguna hótelið. Um er að ræða glæsilegt einbýlishús á einni hæð sem hefur verið mikið endurnýjað síðastliðin ár og er sannkallað draumahús fyrir fjölskylduna.

Eignin telur 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi, þar á meðal rúmgott fataherbergi innaf hjónaherbergi. Eldhúsið er opið og bjart með ríkulegu geymsluplássi og tengist opinni borðstofu sem skapar notalegt og fallegt heildarrými fyrir fjölskyldulífið.

Útisvæðið er sannkölluð paradís. Stór garður býður upp á fullkomna aðstöðu fyrir sólböð, útiveru og matarboð með fjölskyldu og vinum, auk þess sem eignin státar af einkasundlaug. Á stórum þaksvölum er svo heitur nuddpottur þar sem hægt er að slaka á og njóta útsýnisins.

Þetta er einstök eign á einstökum stað og rúsínan í pylsuendanum er að hún er laus til afhendingar strax.

Verð 595.000 evrur + 13-15% kostnaður.

Nánari upplýsingar um Ciudad Quesada
hér

Ciudad Quesada, Spánn

1053 Spánn - Costa Blanca
83.538.000 kr.315 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 3 bað
TegundEinbýlishúsStærð265 m²Herbergi5FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090

Allar 14 myndir

Upp ↑