Um eignina
Glæsileg horn sérhæð í Capri 6 – Vistabella Golf Resort.
Í einkasölu er þessi eigulega horn neðri sérhæð í hinum vinsæla Capri 6 kjarna, staðsett á Vistabella golfvallarsvæðinu.
Eignin var byggð árið 2022 og hefur verið í eigu sama aðila frá upphafi og er vel við haldið og snyrtileg í alla staði.
Um er að ræða rúmgóða íbúð með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, þar af er annað þeirra „en-suite" inn af aðalsvefnherbergi. Skipulagið er bjart og opið og hentar vel bæði til heilsársbúsetu og sem sumardvöl.
Útisvæðið er sérlega aðlaðandi, garður snýr að sameiginlegu sundlaugarsvæði kjarnans auk minni garðs framan við eignina. Umhirða útisvæðis er í lágmarki, sem gerir eignina að tilvöldum kosti fyrir þá sem vilja njóta lífsins áhyggjulaust.
Capri kjarnarnir hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár og halda þeim vinsældum áfram. Sameiginleg svæði eru rúmgóð og gróðursæl, með sameiginlegri sundlaug og skemmtilegum sólbaðssvæðum fyrir íbúa.
Verð 299.000 evrur + 13-15% kostnaður.
Nánari upplýsingar um Vistabella Golf hér
Vistabella Golf, Spánn
Allar 13 myndir
Upp ↑











