1 af 15
Um eignina
NÝTT ÍBÚÐAHVERFI MEÐ SJÁVARÚTSÝNI Í FINESTRAT
Nýbygging – Glæsilegt íbúðahverfi með sjávarútsýni í Finestrat.
Íbúðahverfið samanstendur af 9 húsum með 9 íbúðum í hverju.
Í boði eru 3 tegundir eigna: 27 penthouse íbúðir með einkaþaksvalir, 27 íbúðir á fyrstu hæð með svölum og 27 neðri sérhæðir með einkagarði.
Allt er þetta staðsett í lokuðu og einstöku umhverfi þar sem hægt er að njóta íþrótta og afþreyingar.
Eignirnar eru með nútímalegri og vandaðri hönnun og búnar nýjustu byggingartækni með áherslu á þægindi, hita- og hljóðeinangrun, loftvarmadælu, loftkælingu o.fl.
Hannað í lúxusumhverfi með sameiginlegri sundlaug með aðskildu svæði fyrir börn og fullorðna. Stór sameiginleg garðsvæði. Líkamsrækt með nuddpotti, búningsklefum og sturtum. Slökunarsvæði og leiksvæði fyrir börn.
Héðan er hægt að njóta stórkostlegs útsýnis yfir Miðjarðarhafið ásamt hinum glæsilega sjóndeildarhring Benidorm.
Finestrat er staðsett í Marina Baixa héraðinu á Costa Blanca, rétt við nágrannabæinn Benidorm og í um 40 kílómetra fjarlægð frá Alicante-borg og alþjóðaflugvellinum.
Benidorm er í aðeins fimm mínútna akstursfjarlægð og býður upp á alla nauðsynlega þjónustu, þar á meðal verslanir, bari, veitingastaði, matvöruverslanir, banka, apótek og nokkra alþjóðlega einkaskóla.
Stutt er á strendurnar Levante, Poniente og Cala de Finestrat, sem ná yfir meira en 6 km og teljast meðal þeirra bestu í Evrópu, verðlaunaðar með Bláfánanum af Evrópusambandinu.
Öll afþreying er innan seilingar, svo sem skemmtigarðarnir Aqua Natura, Terra Mítica, Terra Natura, Aqualandia og Mundomar, Sierra Cortina og Villaitana golfvellirnir, göngu- og klifurleiðir í hinu stórbrotna náttúruumhverfi Puig Campana eða fjölbreyttar vatnaíþróttir.
Finestrat, Alicante, Spánn
1053 Spánn - Costa Blanca
63.180.000 kr.865 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð73 m²Herbergi4BílskúrJáFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090
Allar 15 myndir
Upp ↑













