fasteignasölur.is
Orihuela Costa, Alicante, Spánn
1 af 15

Um eignina

NÝTT ÍBÚÐAHVERFI Í PUNTA PRIMA Nýtt íbúðahverfi með bungaló-íbúðum og 7 einbýlishúsum í Punta Prima. Nýbyggð einbýlishúsin eru á tveimur hæðum ásamt sólríkum þaksvölum. Á jarðhæð er björt og rúmgóð stofa með opnu eldhúsi, 1 svefnherbergi með innbyggðum fataskáp og 1 baðherbergi. Á efri hæð eru önnur 3 svefnherbergi með innbyggðum fataskápum og 2 baðherbergi, þar af eitt sérbaðherbergi inn af hjónaherberginu. Úr hjónaherberginu er gengið út á svalir. Stigi liggur upp á einkaþaksvalir. Hverfið býður upp á falleg græn svæði með leikvelli fyrir börn, líkamsrækt og tveimur sameiginlegum sundlaugum. Húsaþyrpingin er staðsett örfáa metra frá miðbæ Punta Prima þar sem finna má alla nauðsynlega þjónustu. Í nágrenninu er fjölbreytt úrval góðra veitingastaða, kaffihúsa, matvöruverslana, apóteka og allrar annarrar þjónustu. Punta Prima er staðsett aðeins 5 km frá Torrevieja og einkennist af góðum samgöngum og heilbrigðisþjónustu, nálægð við Alicante-flugvöll og mikilli þjónustu sem er opin allt árið. Í aðeins 10 km fjarlægð eru golfvellirnir Villamartín, Campoamor, Las Ramblas, Las Colinas og Lo Romero, ásamt verslunarmiðstöðvunum La Zenia og Habaneras.

Orihuela Costa, Alicante, Spánn

1053 Spánn - Costa Blanca
98.265.960 kr.812 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 3 bað
TegundEinbýlishúsStærð121 m²Herbergi6BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090

Allar 15 myndir

Upp ↑