Um eignina
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Vandað og gott 63,8 m2 geymsluhúsnæði merkt 104 við Bugðufljót 17B á stórri lóð við Bugðufljót 17 á Tungumelum í Mosfellsbæ.
Húsið er reist úr forsteyptum einingum frá BM Vallá. Gólfhiti. Epoxy á gólfi. Gönguhurð og 3x3m innkeyrsluhurð með hliðarhengdir rafmagnsopnun frá Héðinshurðir. Tvö bílastæði fyrir framan innkeyrslu hurð.
Hiti er í gólfi og einnig fyrir framan útidyra hurð. Lagt er fyrir WC í gólfi ásamt öðrum niðurföllum.
Sér hiti og rafmagn er í rýminu.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Ákvílandi er á eigninni vsk-kvöð og miðast söluverð við að kaupandi yfirtaki kvöðina.
Verð kr. 31.500.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Verðsaga
3 þinglýstir kaupsamningarHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Bugðufljót 17B
Staðsetning
Allar 6 myndir
Upp ↑




