fasteignasölur.is
San Miguel de Salinas, Alicante, Spánn
1 af 15

Um eignina

NÝBYGGING – BUNGALÓ Í SAN MIGUEL DE SALINAS Nýtt íbúðahverfi með einbýlishúsum og glæsilegum bungalóum, staðsett í Ciudad de las Comunicaciones í San Miguel de Salinas. Fallegu bungalóin bjóða upp á val á milli 2 og 3 svefnherbergja; efri sérhæð með þaksvölum eða neðri sérhæð með garði, og jafnvel er möguleiki á kjallara ef óskað er eftir aukaplássi. Öllum eignum fylgir bílastæði. Í hverfinu er fallegt sameiginlegt svæði með garði og sameiginlegri sundlaug. Íbúðahverfið er staðsett nálægt Las Colinas og Campoamor golfvöllunum og býður upp á einstakt útsýni yfir Torrevieja og La Mata saltvötnin. San Miguel de Salinas er sveitarfélag í Valencia-héraði á Spáni. Það er staðsett í suðurhluta Alicante-héraðs, á Vega Baja del Segura svæðinu nálægt Murcia-héraði. Alicante-flugvöllur er í um 35 mínútna akstursfjarlægð og Corvera-flugvöllur í Murcia er í um 1 klukkustundar akstursfjarlægð.

San Miguel de Salinas, Alicante, Spánn

1053 Spánn - Costa Blanca
47.595.600 kr.517 þ./m²
Einbýlishús2 svefn · 2 bað
TegundEinbýlishúsStærð92 m²Herbergi4BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090

Allar 15 myndir

Upp ↑