fasteignasölur.is
Pilar de La Horadada, Alicante, Spánn
1 af 15

Um eignina

NÝBYGGING EINBÝLISHÚSA Í PILAR DE LA HORADADA VIÐ GOLFVÖLLINN Glæsileg og vönduð nýbygging einbýlishúsa við Lo Romero golfvöllinn í Pilar de la Horadada. Þessi nýbyggðu einbýlishús eru frábær heimili fyrir þig og fjölskylduna þína. Eignirnar eru með þremur svefnherbergjum, þremur baðherbergjum og 45 m2 verönd, auk allra nútímaþæginda sem tryggja dásamlega dvöl. Staðsetningin er frábær, aðeins 100 metrum frá golfvellinum, 5 mínútum frá allri afþreyingu og í aðeins 6 km fjarlægð frá ströndinni. Húsin snúa í suðaustur. Eignunum fylgir einkabílastæði og innbyggðir fataskápar. Ekki nóg með það, heldur hafa eigendur aðgang að sameiginlegri sundlaug, frábæru grillsvæði og setsvæði utandyra til að slaka á. Pilar de la Horadada er dæmigerður spænskur bær syðst á Costa Blanca svæðinu. Við aðalgötuna má finna matvöruverslanir, fjölbreyttar búðir, veitingastaði, bari og falleg torg. Fallegu sandstrendurnar og strandgöturnar í Torre de la Horadada og Mil Palmeras eru í aðeins 5 mínútna fjarlægð. Lo Romero Golf er fullkominn golfvöllur fyrir kylfinga af öllum getustigum og eyjuholan þar er sérstakt aðdráttarafl. Flugvellirnir í Corvera (Murcia) og Alicante eru í 40 og 55 mínútna akstursfjarlægð.

Pilar de La Horadada, Alicante, Spánn

1053 Spánn - Costa Blanca
58.968.000 kr.491 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 3 bað
TegundEinbýlishúsStærð120 m²Herbergi5BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090

Allar 15 myndir

Upp ↑