1 af 14
Um eignina
NÝTT ÍBÚÐAHVERFI Í BENIJOFAR
Nýtt íbúðahverfi með sameiginlegri sundlaug á þaki, staðsett í hjarta hins heillandi bæjar Benijofar.
Hægt er að velja um nútímalegar íbúðir með svölum eða penthouse íbúðir með þaksvölum.
Nútímalegar nýbyggingar með opnu eldhúsi og stofu, 2 og 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og svölum.
Möguleiki er á bílastæði í bílakjallara gegn aukagjaldi.
Benijofar er yndislegur bær með heillandi kirkju og fallegu torgi, staðsettur inn í landi á suðurhluta Costa Blanca, nálægt ferðamannastöðunum Guardamar del Segura og Torrevieja.
Benijofar er einnig vinsæll dvalarstaður í sumarfríum þar sem hann er nógu nálægt strandbæjunum en um leið nógu rólegur til að njóta friðar og rósemi.
Nokkrir golfvellir eru í grenndinni ásamt vatnsrennibrautagörðum í nálægum bæjum, Rojales og Torrevieja.
Næstu og bestu strendurnar við Benijofar eru í um 15 mínútna akstursfjarlægð og teljast til þeirra bestu á suðurhluta Costa Blanca, við Guardamar del Segura og Torrevieja. Einnig eru reglulegar rútuferðir frá Benijofar til Guardamar del Segura og Torrevieja með greiðu aðgengi að ströndunum.
20 mínútna akstur er á flugvöllinn í Alicante með reglulegu flugi um alla Evrópu.
Benijofar, Alicante, Spánn
1053 Spánn - Costa Blanca
35.521.200 kr.582 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð61 m²Herbergi4FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090
Allar 14 myndir
Upp ↑












