fasteignasölur.is
Benijofar, Alicante, Spánn
1 af 14

Um eignina

NÝBYGGING Í BENIJOFAR Nýbygging með sameiginlegri sundlaug á þaki, staðsett í miðbæ hins heillandi þorps Benijofar. Hægt er að velja nútímalegar íbúðir með svölum eða penthouse íbúðir með þaksvölum. Nútímalegar nýbyggingar með opnu eldhúsi og stofu, 2 og 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og svölum. Möguleiki er á bílastæði í bílakjallara gegn aukagjaldi. Benijofar er yndislegt þorp með heillandi kirkju og fallegu torgi, staðsett inn í landi á suðurhluta Costa Blanca, nálægt ferðamannabæjunum Guardamar del Segura og Torrevieja. Benijofar er einnig vinsæll dvalarstaður í sumarfríum þar sem stutt er í strandbæina en á sama tíma nógu rólegt til að geta komist í burtu frá öllu amstri. Nokkrir golfvellir eru í nágrenninu ásamt vatnsrennibrautagörðum í nærliggjandi bæjum, Rojales og Torrevieja. Næstu og bestu strendurnar við Benijofar eru í um 15 mínútna akstursfjarlægð og teljast til þeirra bestu á suðurhluta Costa Blanca, við Guardamar del Segura og Torrevieja. Einnig ganga reglulegar rútur frá Benijofar til Guardamar del Segura og Torrevieja með greiðu aðgengi að ströndunum. Alicante-flugvöllur er í 20 mínútna akstursfjarlægð með reglulegu flugi um alla Evrópu.

Benijofar, Alicante, Spánn

1053 Spánn - Costa Blanca
49.701.600 kr.546 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð91 m²Herbergi5FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090

Allar 14 myndir

Upp ↑