fasteignasölur.is
Los Alcazares, Murcia, Spánn
1 af 15

Um eignina

NÝBYGGING: ÍBÚÐAHVERFI NÁLÆGT LA SERENA GOLF Í LOS ALCÁZARES Þetta glæsilega íbúðahverfi mun samanstanda af 244 íbúðum með 2 og 3 svefnherbergjum, sem skiptast niður á 8 byggingar, auk 20 einbýlishúsa. Nútímalegar íbúðir á 3 hæðum (neðri sérhæð auk 2 hæða). Neðri sérhæðir eru með fallegum görðum og sumar með einkasundlaug, og önnur hæð er með glæsilegum svölum og einkaþaksvölum. Horníbúðir (4 á hverri hæð) og efri sérhæðir eru með 3 svefnherbergjum en aðrar íbúðir með 2 svefnherbergjum. Eignir sem snúa í austur hafa útsýni yfir sameiginleg svæði en þær sem snúa í vestur njóta dásamlegs útsýnis yfir golfvöllinn. Í hverfinu er sameiginleg sundlaug og sameiginleg svæði. Hverri íbúð fylgir eigið bílastæði og sérgeymsla í kjallara, sem er innifalið í verði. Húsaþyrpingin er staðsett á fremstu línu við hinn virta golfvöll „La Serena Golf“. Golfvöllurinn er vel þekktur fyrir vötn og gróður sem fléttast inn í brautirnar. Vatn kemur við sögu á 16 af 18 holum vallarins, en völlurinn er hannaður til að krefjast mismunandi leikaðferða á hverri holu. Annar kostur sem gerir völlinn einstakan er að hann er í göngufæri við miðbæinn, sem er fátítt á golfsvæðum og gerir manni kleift að njóta kyrrðar og fegurðar svæðisins án þess að fórna aðgengi að þeirri þjónustu sem Los Alcázares býður upp á. Los Alcázares er frábært svæði á Costa Cálida, í aðeins 25 mínútna fjarlægð frá Murcia-flugvelli og 55 mínútum frá Alicante-flugvelli. Svæðið er vel tengt með hraðbrautum við borgirnar Cartagena, Murcia og Alicante ásamt öðrum ströndum á Costa Cálida og Costa Blanca.

Los Alcazares, Murcia, Spánn

1053 Spánn - Costa Blanca
54.756.000 kr.521 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð105 m²Herbergi5BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090

Allar 15 myndir

Upp ↑