fasteignasölur.is
Njálsgata 72
Opið hús 13. sept. kl. 12:00–12:30
1 af 27

Um eignina

Nýtt á skrá! Njálsgata 72 Reykjavík - Afar falleg og sjarmerandi 3ja herb. íbúð!

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna afar sjarmerandi, bjarta og mikið endurnýjaða þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í steyptu fjölbýlishúsi við Njálsgötu 72 í Reykjavík. Íbúðin er alls 70,8 fermetrar að stærð og með gluggum á þrjá vegu. Geymsla fylgir íbúðinni í kjallara. Sameign er falleg í upprunalegum stíl.

Húsið lítur vel út að utan og er snjóbræðsla í stétt fyrir framan hús. Hugað hefur verið að viðhaldi hússins, m.a. var þakjárn, þakrennur og snjóhrunsvarnir endurnýjað árið 2016 og allir gluggar hússins (ásamt hurð úr í bakgarð) voru endurnýjaðir árið 2022. Þá er búið að endurnýja ofna- og hitavatnslagnir ásamt hluta af lagnagrind og þrýstijafnara. Auk þess er búið að endurnýja gólfefni íbúðar.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað í miðborginni þaðan sem stutt er í alla versluna og þjónustu, veitingastaði og aðra menningu/afþreyingu sem miðborgin hefur upp á að bjóða. Stutt er í helstu stofnæðar frá hverfinu.

Nánari lýsing:

Forstofa/hol: Flotað gólf, fatahengi og gluggi til norðurs.
Eldhús: Með flotuðu gólfi, fallegri dökkri eldhúsinnréttingu og gluggum til norðurs. Stál bakaraofn, helluborð, innb. uppþvottavél og lýsing undir efri skápum. 
Stofa: Með flotuðu gólfi og gluggum til norðurs og suðurs. Rúmar setustofu og borðstofu.
Baðherbergi: Er fallega endurnýjað með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta, vaskur og upphengt salerni.
Svefnherbergi I: Er stórt, með harðparketi, nýlegu klæðaskápum og gluggum til vesturs og norðurs.
Svefnherbergi II: Með rúmgott, með harðparketi á gólfi, fatahengi og gluggum til suðurs og norðurs.

Geymsla: Er staðsett í kjallara og er 6,0 fermetrar að stærð.
Þvottaherbergi: Er sameiginlegt í kjallara hússins. Gluggi til suðurs. 

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali og lögfræðingur í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Verðsaga

6 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
64.900.000 kr.917 þ./m²
+4,7% á 2 árum
27. maí 2024Þinglýstur kaupsamningur
62.000.000 kr.876 þ./m²
+60,2% á 3 árum
19. mars 2021Þinglýstur kaupsamningur
38.700.000 kr.547 þ./m²
+11,2% á 3 árum
26. júní 2018Þinglýstur kaupsamningur
34.800.000 kr.492 þ./m²
+20,4% á 2 árum
27. október 2016Þinglýstur kaupsamningur
28.900.000 kr.408 þ./m²
+71,0% á 8 árum
15. júlí 2008Þinglýstur kaupsamningur
16.900.000 kr.239 þ./m²
+26,1% á 1 ári
7. nóvember 2007Fyrsta sala
13.400.000 kr.189 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Njálsgata 72

101 Reykjavík
64.900.000 kr.917 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1932TegundFjölbýlishúsStærð70,8 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20083881Fasteignamat57.400.000 kr.Brunabótamat36.050.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 27 myndir

Upp ↑