Nýtt
1 af 15Um eignina
NÝTT ÍBÚÐAHVERFI Í VILLAJOYOSA
Nýtt íbúðahverfi með íbúðum í Villajoyosa, staðsett í aðeins 450 metra fjarlægð frá sjónum.
Nútímalegar íbúðir með 2, 3 eða 4 svefnherbergjum, opnu eldhúsi inn í stofu, stórum svölum og fullbúnu hverfi sem inniheldur félagsaðstöðu, líkamsrækt og sundlaug.
Neðri sérhæðir eru með einkagarði og penthouse íbúðir eru með sér þaksvölum með undirbúningi fyrir heitan pott.
Í örstuttri fjarlægð frá nýja heimilinu þínu finnur þú verslunarmiðstöðvar, sjúkrahús og alls kyns þjónustu.
Hverfið er staðsett í aðeins 2 km fjarlægð frá miðbæ Villajoyosa og 10 km frá Benidorm. Nýja heimilið þitt er staðsett í friðsælli náttúruperlu við Playa del Torres, þar sem er vík með kristaltærum og kyrrum sjó og fagurblár liturinn í aðalhlutverki.
Öllum eignum fylgir sér bílastæði.
Villajoyosa er falin perla á spænsku Costa Blanca-ströndinni. Þetta litríka sjávarþorp er staðsett á milli Benidorm og El Campello, í um 30 mínútna akstursfjarlægð frá Alicante-flugvelli.
Á undanförnum árum hefur þessi heillandi bær orðið eftirsóttur staður fyrir orlofsíbúðareigendur og ferðamenn. Villajoyosa hefur upp á margt að bjóða, allt frá breiðri sandströnd til þröngra og litríkra gatna í sögulega bæjarhlutanum.
Í dag búa rúmlega þrjátíu þúsund manns í Villajoyosa, og litrík húsin veita óteljandi listamönnum innblástur.
Villajoyosa er einnig þekkt fyrir safn hinnar ljúffengu Valor súkkulaðiverksmiðju.
Villajoyosa, Alicante, Spánn
1053 Spánn - Costa Blanca
89.154.000 kr.407 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð219 m²Herbergi5BílskúrJáFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090
Allar 15 myndir
Upp ↑













