fasteignasölur.is
Villajoyosa, Alicante, Spánn
Nýtt
1 af 15

Um eignina

NÝBYGGING - ÍBÚÐAHVERFI Í VILLAJOYOSA Nýtt íbúðahverfi í Villajoyosa, staðsett í aðeins 450 metra fjarlægð frá sjónum. Nútímalegar 2 og 3 svefnherbergja íbúðir með eldhúsi í opnu rými við stofu, stórum svölum og fullbúnu hverfi með klúbbhúsi, líkamsrækt og sundlaug. Neðri sérhæðir eru með einkagarði. Nálægt nýja heimilinu finnur þú verslunarmiðstöðvar, sjúkrahús og alls kyns þjónustu í örfárra mínútna fjarlægð. Íbúðahverfið er staðsett í aðeins 2 km fjarlægð frá miðbæ Villajoyosa og 10 km frá Benidorm. Nýja heimilið þitt er staðsett í unaðslegu umhverfi við Playa del Torres. Þetta er vík með kristaltærum og kyrrum sjó þar sem túrkísblái liturinn er í aðalhlutverki. Öllum eignum fylgir einkabílastæði. Villajoyosa er falin perla á Costa Blanca á Spáni. Þetta litríka sjávarþorp er staðsett á milli Benidorm og El Campello, í um 30 mínútna akstursfjarlægð frá flugvellinum í Alicante. Á undanförnum árum hefur þessi heillandi bær orðið eftirsóttur staður fyrir orlofsíbúa og ferðamenn. Villajoyosa hefur upp á margt að bjóða, allt frá breiðri sandströnd til þröngra og litríkra gatna í sögulega bæjarkjarnanum. Í dag búa rúmlega þrjátíu þúsund manns í Villajoyosa og litrík húsin veita ótal listamönnum innblástur. Villajoyosa er einnig þekkt fyrir safn Valor-súkkulaðiverksmiðjunnar.

Villajoyosa, Alicante, Spánn

1053 Spánn - Costa Blanca
68.094.000 kr.613 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð111 m²Herbergi5BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090

Allar 15 myndir

Upp ↑