Nýtt
1 af 15Um eignina
NÝTT ÍBÚÐAHVERFI Í VILLAJOYOSA
Nýtt íbúðahverfi með íbúðum í Villajoyosa, staðsett aðeins 450 metrum frá sjónum.
Nútímalegar íbúðir með 2, 3 eða 4 svefnherbergjum, opnu eldhúsi við stofu og borðstofu, rúmgóðum svölum og fullbúnu hverfi sem býður upp á klúbbhús, líkamsrækt og sundlaug.
Neðri sérhæðir eru með einkagarði. Penthouse íbúðir eru með einkaþaksvölum sem eru undirbúnar fyrir nuddpott.
Í örstuttu göngu- eða akstursfæri frá nýja heimilinu finnur þú verslunarmiðstöðvar, sjúkrahús og alls kyns þjónustu.
Húsaþyrpingin er staðsett aðeins 2 km frá miðbæ Villajoyosa og 10 km frá Benidorm.
Nýja heimilið þitt er staðsett í dásamlegu náttúrulegu umhverfi við Playa del Torres, vík með kristaltærum og kyrrum sjó þar sem túrkisblái liturinn ræður ríkjum.
Öllum eignum fylgir sérbílastæði.
Villajoyosa er falin perla á Costa Blanca á Spáni. Þetta litríka sjávarþorp er staðsett á milli Benidorm og El Campello, í um 30 mínútna akstursfjarlægð frá Alicante-flugvelli.
Undanfarin ár hefur þessi heillandi bær orðið mjög eftirsóttur staður fyrir kaupendur sumarhúsa og ferðamenn. Villajoyosa hefur upp á margt að bjóða, allt frá breiðri sandströnd til þröngra og litríkra gatna í sögulega bæjarkjarnanum.
Í dag búa rúmlega þrjátíu þúsund manns í Villajoyosa og litrík húsin veita ótal listamönnum innblástur.
Villajoyosa er einnig þekkt fyrir safn hinnar ljúffengu Valor-súkkulaðiverksmiðju.
Villajoyosa, Alicante, Spánn
1053 Spánn - Costa Blanca
90.558.000 kr.600 þ./m²
Fjölbýlishús4 svefn · 3 bað
TegundFjölbýlishúsStærð151 m²Herbergi6BílskúrJáFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090
Allar 15 myndir
Upp ↑













