fasteignasölur.is
Finestrat, Alicante, Spánn
Nýtt
1 af 15

Um eignina

NÝBYGGING EINBÝLISHÚSA Í BALCON DE FINESTRAT Nýbygging nútímalegra einbýlishúsa í Balcon de Finestrat. Rúmgóð og björt einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, opnu eldhúsi við stofu og borðstofu, fallegri verönd, einkagarði með sundlaug og bílastæði. Samspil viðar og náttúrusteins gerir húsið nútímalegt og sveitalegt á sama tíma. Einbýlishúsin eru staðsett í 10 mínútna fjarlægð frá Benidorm og aðeins 2 km frá Finestrat. Aðeins tekur um 6 mínútur að keyra í skemmtigarðinn Terra Mítica þar sem hægt er að njóta góðra stunda með fjölskyldunni. Þessi staðsetning gerir eignirnar að frábærum kosti sem orlofsheimili. Finestrat er staðsett í Marina Baixa héraðinu á Costa Blanca, rétt við nágrannabæinn Benidorm og í um 40 kílómetra fjarlægð frá borginni Alicante og alþjóðaflugvellinum. Bærinn stendur í hlíðum Puig Campana fjallsins og býður upp á fallegt útsýni yfir fjöllin, ströndina og Miðjarðarhafið. Benidorm er í aðeins fimm mínútna akstursfjarlægð frá eignunum og býður upp á alla þá þjónustu sem þú þarft, þar á meðal verslanir, bari, veitingastaði, matvöruverslanir, banka, apótek og nokkra alþjóðlega einkaskóla. Stutt er í strendurnar Levante, Poniente og Cala de Finestrat, sem ná yfir meira en 6 km strandlengju og teljast meðal þeirra bestu í Evrópu, enda handhafar Bláfánans frá Evrópusambandinu. Öll afþreying er í næsta nágrenni, svo sem skemmtigarðarnir Aqua Natura, Terra Mítica, Terra Natura, Aqualandia og Mundomar, Sierra Cortina og Villaitana golfvellirnir, gönguleiðir og klifur á Puig Campana í óviðjafnanlegu náttúruumhverfi, ásamt fjölbreyttu úrvali vatnaíþrótta. 1168

Finestrat, Alicante, Spánn

1053 Spánn - Costa Blanca
103.194.000 kr.511 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundEinbýlishúsStærð202 m²Herbergi5BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090

Allar 15 myndir

Upp ↑