fasteignasölur.is
Finestrat, Alicante, Spánn
Nýtt
1 af 15

Um eignina

NÝBYGGÐ EINBÝLISHÚS Í BALCON DE FINESTRAT Nýbyggð, nútímaleg einbýlishús í Balcon de Finestrat. Rúmgóð og björt einbýlishús með 4 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum, opnu eldhúsi inn af stofu og borðstofu, fallegri verönd, einkagarði með sundlaug og bílastæði. Samspil viðar og náttúrusteins gerir húsin nútímaleg og hlýleg á sama tíma. Einbýlishúsin eru staðsett í 10 mínútna fjarlægð frá Benidorm og í aðeins 2 km fjarlægð frá Finestrat. Það tekur aðeins 6 mínútur að keyra í skemmtigarðinn Terra Mítica þar sem tilvalið er að njóta dagsins með fjölskyldunni. Þessi staðsetning gerir húsin að frábæru vali sem orlofshús. Finestrat er staðsett í Marina Baixa héraðinu á Costa Blanca, rétt við hliðina á Benidorm og um 40 kílómetrum frá Alicante og alþjóðaflugvellinum. Bærinn stendur í hlíðum Puig Campana fjallsins og býður upp á stórbrotið útsýni yfir fjöllin, ströndina og Miðjarðarhafið. Benidorm er í aðeins fimm mínútna akstursfjarlægð frá húsunum og þar er alla nauðsynlega þjónustu að finna, þar á meðal verslanir, bari, veitingastaði, matvöruverslanir, banka, apótek og nokkra alþjóðlega einkaskóla. Stutt er á strendurnar Levante, Poniente og Cala de Finestrat, sem ná yfir meira en 6 km strandlengju og teljast til þeirra bestu í Evrópu, enda hafa þær hlotið Bláfánann frá Evrópusambandinu. Fjölbreytt afþreying er í næsta nágrenni, svo sem vatna- og skemmtigarðarnir Aqua Natura, Terra Mítica, Terra Natura, Aqualandia og Mundomar, Sierra Cortina og Villaitana golfvellirnir, gönguleiðir og klifur í Puig Campana í óviðjafnanlegu náttúruumhverfi, auk fjölda vatnaíþrótta.

Finestrat, Alicante, Spánn

1053 Spánn - Costa Blanca
117.936.000 kr.702 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 4 bað
TegundEinbýlishúsStærð168 m²Herbergi6BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090

Allar 15 myndir

Upp ↑