fasteignasölur.is
Skyggnisholt 14
1 af 33

Um eignina

Atli og Kristján á Lind fasteignasölu kynna í einkasölu bjarta og vel skipulagða eign í nýlegu húsi við Skyggnisholt 14. Íbúðin er 4ra herbergja með sérinngangi og er staðsett á jarðhæð við enda hússins og er því með glugga á þrjá vegu. Eigninni fylgir sérafnotareitur og geymsla er innan íbúðar.

Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR: Birt stærð 106.6 fm.

Bókið einkaskoðun og nánari upplýsingar veita:
Atli Karl Pálmason - Löggiltur fasteignasali / atli@fastlind.is / 662-4252
Kristján Þórir Hauksson - Löggiltur fasteignasali / kristjan@fastlind.is / 696-1122


Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu, svefnherbergi l, svefnherbergi ll, svefnherbergi lll, baðherbergi og geymslu innan íbúðar.

Nánari lýsing:
Gengið inn um sérinngang á jarðhæð við enda hússins.
Forstofa með rúmgóðum fataskáp og flísum á gólfi.
Gangur með harðparketi á gólfi og flísum á vegg.
Stofa og borðstofa í opnu alrými með harðparketi á gólfi.
Eldhús er bjart með góðu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél og framlengdri eyju fyrir barstóla.
Baðherbergi er rúmgott með walk-in sturtu með glerþyli, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi og harðparketi á gólfi (15,9 fm).
Svefnherbergi ll er rúmgott með góðum fataskáp og harðparketi á gólfi (12,8 fm).
Svefnherbergi lll er með fataskáp og harðparketi á gólfi (7,1 fm).
Verönd er hellulögð að hluta og gróin með afgirtum timburveggjum.
Geymsla er innan íbúðar, gæti nýst sem tímabundið aukasvefnherbergi en er þó gluggalaus (4,7 fm).

Sameiginlegir hleðslustaurar fyrir rafbíla eru á lóðinni. 
Húsið er steinsteypt og er tveggja hæða með 8 íbúðum og 32 bílastæðum sem eru í sameign allra íbúa Skyggnisholts 12 og 14.

Skyggnisholt 14, 190 Vogar, nánar tiltekið eign merkt 01-04, fastanúmer 252-0531 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Nánari upplýsingar veitir Atli Karl Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 6624252, tölvupóstur atli@fastlind.is.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
65.900.000 kr.618 þ./m²
+10,8% á 3 árum
24. nóvember 2023Fyrsta sala
59.500.000 kr.558 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Skyggnisholt 14

190 Vogar
65.900.000 kr.618 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2023TegundFjölbýlishúsStærð106,6 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF252053113Fasteignamat65.400.000 kr.Brunabótamat57.300.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑