fasteignasölur.is
Hafnarbraut 18
Opið hús 13. sept. kl. 13:00–13:30
1 af 35

Um eignina

RE/MAX kynnir með stolti: Hafnarbraut 18. Vandaðar og glæsilegar íbúðir í nýju og fallegu fjölbýlishúsi við sjávarsíðuna á Kársnesi, 200 Kópavogi.

⭐️ Fjölbreyttar stærðir og gerðir frá 48 til 194 fm. Stæði í bílageymslu fylgir flestum íbúðum.
⭐️ Íbúðirnar skilast fullbúnar með parketi. Sérsmíðaðar innréttingar frá Brúnás. Vönduð eldhústæki og sjálfstætt loftskiptikerfi. Aukin lofthæð, 270-290 cm.

Íbúð 404: Rúmgóð og björt tveggja herbergja, 71,2 m2 íbúð á fjórðu hæð. Víðsýnt til austurs, gólfsíðir gluggar í stofu og 290cm lofthæð yfir mestum hluta íbúðar. Vönduð Bambus klæðning á svalagólfi. Sér þvottahús innan íbúðar með veglegri innréttingu. Sér 4,7 m2 geymsla í sameign.


⭐️ Kynningarvefur hússins ⭐️

Bókið skoðun, sýnum alla daga
Þorsteinn Yngvason, Lögmaður/löggiltur fasteignasali, í síma 696-0226 / thorsteinn@remax.is
Guðmundur Þór Júlíusson, Löggiltur fasteignasali, í síma 858-7410 / gj@remax.is

Elvar Frímann Frímannsson, Löggiltur fasteignasali, í síma 659-6606 / elvar@remax.is

Ending og gæði voru höfð að leiðarljósi við allt efnisval og frágang hússins. Hér eru helstu kostir við frágang:
✅ Sjálfstætt loftskiptikerfi í öllum íbúðum
✅ Sérsmíðaðar innréttingar, framleiddar og uppsettar af Brúnaás.
✅ Ítalskar kvarts borðplötur á eldhúsum og baðherbergjum
✅ Aukin lofthæð í öllum íbúðum, 270 – 290 cm
✅ Innbyggður kæliskápur og uppþvottavél. Hreinlætistæki frá Grohe
✅ Vönduð og falleg álklæðning sem veðurkápa
✅ Sér þvottahús í flestum íbúðum
✅ Svalagólf og sérafnotareitir skilast með viðhaldsléttu Bambus pallaefni
✅ Vönduð svalalokun/skýli í völdum íbúðum

Húsið:
Hafnarbraut 18 er vandað og einstaklega vel staðsett fjölbýlishús við sjávarsíðuna á vestanverðu Kársnesinu í námunda við fyrirhugaða Fossvogsbrú sem mun, ásamt Borgarlínustöð, skapa sterka tengingu við Öskjuhlíð, háskólasvæðin, Reykjavíkurflugvöll og miðborg Reykjavíkur. Húsbyggingin er fimm hæðir á niðurgröfnum kjallara þar sem eru bílastæði, sérgeymslur, sameiginlegar reiðhjóla- og vagnageymslur og tæknirými. Á íbúðahæðunum fyrir ofan eru 52 fjölbreyttar íbúðir af mismunandi gerð, stærð og herbergjafjölda. Byggingin er hönnuð fyrir fjölbreyttan markhóp íbúa, allt frá sérhönnuðum stúdíóíbúðum til rúmgóðra fjölskylduíbúða. Byggingaraðili/aðalverktaki er Brúarbyggð ehf.

⭐️ Skilalýsing og tækjalisti seljanda ⭐️

Hönnun:
Arkitektar og aðalhönnuðir eru Skala: arkitektar
Burðarþolshönnun: Verkfræðistofan Víðsjá
Lagna- og loftræstihönnun: Verkfræðistofan Víðsjá
Raflagnahönnun: Sturla Snorrason
Hljóðvistarhönnun: Myrra hljóðstofa
Eldvarnahönnun: ÖRUGG verkfræðistofa
Landslagshönnun og innanhússhönnun: Skala: arkitektar

Umhverfið:
Hverfið er rólegt og gróið og býr yfir miklum náttúrutöfrum. Skólar eru í næsta nágrenni og í göngu fjarlægð er bæði Sky lagoon og sundlaug Kópavogs. Þá eru nærri verslanir, heilbrigðisþjónusta að ógleymdum menningarperlum Kópavogs, Gerðasafni, Salnum og Kópavogskirkju sem er eitt af kennileitum bæjarins. Stutt er í matvöruverslanir og alla helstu þjónustu. Kársnesið er með fjölda göngu- og hjólastíga sem tengist hvort sem er til Reykjavíkur eða inn í Kópavoginn. Einstök staðsetning fyrir þá sem elska að horfa út á hafið og njóta þess að vera með bát í höfn.

Skipulagsgjald: Kaupendur greiða álagt skipilagsgjald við endanlega útgáfu brunabótamats sem nemur 0,3% af heildarmati.

Hafnarbraut 18

200 Kópavogur
72.900.000 kr.1.024 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð71,2 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF253157419Fasteignamat47.400.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Allar 35 myndir

Upp ↑