fasteignasölur.is
Nýbýlavegur 76
Opið hús 14. sept. kl. 16:45–17:15
1 af 26

Um eignina

Opið hús mánudaginn 14. september frá kl 16:45 til 17:15 - Nýbýlavegur 76, 200 Kópavogur

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:

Falleg 2ja herbergja íbúð ásamt bílskúr við Nýbýlaveg í Kópavogi.
Eignin er samtals 74,7 fm (þar af geymsla 6,6 fm og bílskúr 18,5 fm.)


Íbúðin skiptist þannig:
Hol: Harðparket á gólfi, fataskápur. 
Eldhús: Upphaflega viðarinnrétting með efri og neðri skápum, borðkrókur, gluggi. 
Stofa: Rúmgóð og björt setustofa, harðparket á gólfi, útgengt á skjólgóðar og sólríkar svalir sem snúa í suður.
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi, fataskápar.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað, flísar á gólfi og hluta veggja, ljós innrétting undir vaski og skápur, sturtuklefi, gluggi, tengi fyrir þvottavél.

Á jarðhæð fylgir íbúðinni sérgeymsla.
Bílskúr fylgir eigninni (18,5 fm). Bílskúrinn er með hita og rafmagni. Stór og gróin lóð.

Góð íbúð miðsvæðis í borginni - örstutt í alla helstu verslun og þjónustu.

2019: Húsið var klætt að utanverðu að hluta til.
2025: Stigahús var málað og nýtt teppi lagt á gólfin.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða ingibjorg@hibyli.is 
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800

Nýbýlavegur 76

200 Kópavogur
59.900.000 kr.802 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1980TegundFjölbýlishúsStærð74,7 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20645483Fasteignamat56.200.000 kr.Brunabótamat42.650.000 kr.
Skráð hjá
Híbýli
HeimilisfangKringlunni 4-6, 103 ReykjavíkSími585-8800

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑