1 af 20
Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Falleg og vel staðsett hæð við Meðalholt 11 í Reykjavík, eignin skráð 3ja herbergja, samtals 77,3 fm að stærð. íbúðin er á 2 hæð og er skráð 60,7 fm og telur andyri/hol, baðherbergi, eldhús, svefnherbergi og 2 stofur þar sem einfalt væri að nýta aðra stofuna sem annað svefnherbergi. Með eigninni eru skráðar tvær geymslur í kjallara, ein undir stiga og er skráð 1,7 fm að stærð, önnur sem nýtt er í dag sem studioherbergi(útleigueining) og er 16,1 fm stærð. Herbergið er í útleigu í dag.Að auki fylgir eigninni afnotaréttur af sameiginlegri geymslu í kjallara og aðgengi að sameiginlegu þvottarými í kjallara. Háaloft er yfir sjálfri íbúðinni sem nýstist sem góð geymsla. Um er að ræða virkilega vel skipulagða eign með möguleika á góðum leigutekjum. Íbúðin er laus við kaupsamning.
Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali, í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Endurbætur síðustu ára: Nýtt þak 2023. Húsið drenað 2024. Búið að skipta út rafmagnstöflu. Nýtt gler í flest öllum gluggum íbúðarinnar. Innréttingum og baðherbergi skipt út fyrir ca. 10 árum. Verið að endugera stigagang og sameign in inngang í húsið.
Nánari lýsing:
Andyri/hol með góðu fatahengi, flísar á gólfi.
Borðstofa(svefnherbergi) með parket á gólfi, búið að loka yfir í stærra herbergið, horn gluggar í suðvestur snýr út í garð.
Stofa með parket á gólfi og glugga í suðvestur sem snýr út í garð.
Svefnherbergi rúmgott með parket á gólfi og glugga sem snýr í norðaustur. Gott skápapláss.
Eldhús með ljósri innréttingu og góðu skápaplassi. Eldavél með innbyggðum ofni.
Baðherbergi flísalagt með upphengdu salerni, lítilli innréttingu og fínum sturtuklefa
Í Kjallara:
Studioherbergi(skráð geymsla) mjög rúmgott með glugga sem snýr út í garð. Leigutekjur í dag er 100 þús á mánuði.
Sameiginleg þvottaaðstaða og baðherbergi sem heimilt er til notkunar leigutaka í kjallara.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Meðalholt 11
105 Reykjavík
68.900.000 kr.891 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár1942TegundFjölbýlishúsStærð77,3 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20115392Fasteignamat61.450.000 kr.Brunabótamat43.550.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 20 myndir
Upp ↑


















