fasteignasölur.is
Skyggnisbraut 7
Opið hús í dag kl. 18:00–18:30
1 af 26

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir: Virkilega rúmgóða 3ja herbergja íbúð með sérmerktu bílastæði við Skyggnisbraut 7. Eignin er skráð 86,5fm þar af 8,1fm geymsla og sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara. Íbúðin telur forstofu, baðherbergi, barnaherbergi og gott hjónaherbergi, stofu og borðstofu í opnu rými með útgengi á afgirtan sérafnotareit/pall. Allar nánari upplýsingar veitir Andrea Lárusdóttir aðstoðarm. lgf. í GSM: 861-0125 eða andrea@fstorg.is og/eða Sigurður Gunnlaugsson í GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is.

Nánari lýsing:
Forstofa er með góðum fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er inn af forstofu, flísalagt með walk-in sturtu, góðri vaskainnréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Barnaherbergi er rúmgott og bjart með glugga á tvo vegu, flott skápaeining, parket á gólfi.
Alrými telur eldhús, borðstofu og stofu með útgengi á sérafnotareit, stórir gluggar á tvo vegu, parket á gólfi.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu og tengi fyrir ísskáp, parket á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með innbyggðri skápaeiningu og stórum glugga, parket á gólfi.
Sérafnotareitur afar rúmgóður timburpallur. 
Sérmerkt bílastæði í bílakjallara merkt B63.

Samantekt: Um ræðir vel skipulagða eign á þessum frábæra stað í Grafarholtinu þar sem stutt ert í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla auk fallegra gönguleiða eins og Úlfarsfellið til að nefna. Allar nánari upplýsingar veitir Andrea Lárusdóttir aðstoðarm. lgf. í GSM: 861-0125 eða
andrea@fstorg.is.
 

Allar 26 myndir

Upp ↑