1 af 41
Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Virkilega fallegt og mikið endunýjað parhús að Akurgerði 31, 108 Reykjavík. Húsið er byggt árið 1956 og er skráð 191,8 m², búið er að grafa út rými á neðri hæðinni sem er í fullri nýtingu og því heildar nýting á eigninni um 210 fm. Húsið er á þremur hæðum ásamt bílskúr. Tvö nýlega uppgerð baðherbergi ásamt gestasalerni. Fjögur svefnherbergi, sér þvottahús, nýlega uppgert eldhús, borðstofa, stofa og sjónvarpshol. Mögulegt er að útbúa auka íbúð á jarðhæð. Mjög fallegur garður til suðurs með palli, heitum potti og 15 fm sérstæðum geymsluskúr. Húsið hefur verið mikið endurnýjað síðustu ár og er í góðu ásigkomulagi. Búið að skipta út öllum vatns og fráveitulögnum.Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Nánari lýsing eignar:
Inngangur inn í miðhæð eignarinnar. Forstofa með flísum á gólfi og fatahengi. Rúmgott nýlegt eldhús með góðu vinnuplássi, steinn á borðum, innbyggður ísskápur, innbyggður frystir og innbyggð uppþvottavél. Bosch eldavél, ofn og örbylgjuofn. Falleg vifta fyrir ofan eldavél. Borðstofa með frönskum gluggum og útgengi í suðurgarð með palli og heitum potti. Rúmgóð stofa með gluggum til suðurs. Þvottahús og gestasalerni á miðhæð. Nýlega búið að leggja gólfhita í alla miðhæðina.
Gengið niður teppalagðan stiga á jarðhæð. Önnur inngönguhurð framan við hús sem hægt væri að nýta sem sér inngang á jarðhæð og útbúa þar auka íbúð. Á jarðhæð eru tvö rúmgóð herbergi með gluggum, Nýlega uppgert baðherbergi með baðkari og stórum sturtuklefa með innbyggðum blöndunartækjum. Gólfhiti er á allri jarðhæðinni, nýlegar lagnir. Gott sjónvarpshol. Tæknirými með nýrri rafmagnstöflu, hitagrind og stýringu fyrir heitan pott.
Gengið er upp teppalagðan stiga á efri hæð. Tvö rúmgóð svefnherbergi, fataherbergi inn af hjónaherbergi og útgengi út á svalir. Uppgert baðherbergi með sturtuklefa, upphendu salerni og handklæðaofni. Köld geymsla yfir allri efri hæðinni. Nýlegir ofnar og lagnir á efri hæð.
Bílskúr með sér rafmagnstöflu, geymslulofti og vinnuaðstöðu í stúkuðu rými.
Suðurgarður með 90–100 m² palli úr plastefni. Heitur pottur með harðviðarklæðningu og geymslurými. Gróðurker fyrir ræktun. Ný 15 m² geymsla í efri garði.
Endurbætur síðustu ára: Eldhús, gestasalerni og bæði baðherbergi endurnýjuð að öllu leiti. Nýjar heita- og kaldavatnslagnir, ofnalagnir og gólfhiti.
Dren og nýjar frárennslislagnir. Rafmagn endurnýjað, ný rafmagnstafla og lagnagrind. Nýjir gluggar í kjallara, að hluta á miðhæð og nýjir gluggar í barnaherbergi uppi. Þak ca. 12 ára, málað 2024. Búið er að tengja ryksugukerfi í eignina.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - eignamidlun@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Akurgerði 31
108 Reykjavík
154.900.000 kr.738 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 3 bað
Byggingarár1956TegundRað-/parhúsStærð209,9 m²Herbergi6InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF203446610Fasteignamat127.500.000 kr.Brunabótamat91.200.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 41 myndir
Upp ↑







































