fasteignasölur.is
Haustakur 2
Opið hús 12. sept. kl. 13:00–13:30
1 af 29

Um eignina

Haustakur 2 - Garðabæ

Opið hús laugardaginn 12.september frá kl 13:00-13:30


STOFAN FASTEIGNASALA kynnir bjarta og fallega 4 herbergja íbúð í litlu fjölbýli við Haustakur 2, Garðabæ.  Eignin er vel staðsett í Akrahverfinu þar sem stutt er í stofnæðar, skóla, leikskóla, verslanir og aðra þjónustu. Allar innréttingar og hurðar eru úr eik, gegnheilt eikarparket er á gólfum alrýmis og svefnherbergja en flísar á gólfum forstofu, salernis og þvottahúss.
Eignin er skráð samtals 140,1 fm og er á 2. hæð með sérinngangi.

 
  • Sérinngangur af svalagangi
  • 3 svefnherbergi
  • Rúmgóðar suður svalir
  • Fallegt útsýni yfir Garðabæinn
  • Hleðslustöðvar við húsið

Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskápum.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi og er rýmið bjart og rúmgott, fallegt úrsýni er úr rýminu og gengið er úr sofu út á rúmgóðar suðursvalir (11,6 fm).
Eldhús er opið og bjart og samliggjandi með stofu, falleg innrétting og eyja, bakarofn í vinnuhæð, helluborð, háfur og tengi fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi er bjart og rúmgott með fjörföldum fataskápum.
Tvö rúmgóð herbergi, tvöfaldur skápur er í dag í öðru herberginu en hitt var upphaflega nýtt sem sjónvarpsherbergi og skápur þess herbergis er nú í geynslunni og auðvelt að færa hann upp aftur. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, góð innrétting, baðkar, sturta og upphengt salerni.
Þvottahús innan íbúðar með innréttingu, flísar á gólfi.
Sérgeymsla staðsett á jarðhæð sem er 17,1 fm.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Hleðslustöðvar við húsið í sameign íbúa.
 
Sameiginlegur garður er í kringum húsið sem hefur verið sinnt vel eins og annað umhverfis húsið.
Bílastæði máluð í sumar 2026.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðný Ósk í síma 866-7070, gudny@stofanfasteignir.is og Atli Þór í síma 699-5080, atli@stofanfasteignir.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.

Haustakur 2

210 Garðabær
118.900.000 kr.849 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2006TegundFjölbýlishúsStærð140,1 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22842461Fasteignamat102.700.000 kr.Brunabótamat76.550.000 kr.
Skráð hjá
STOFAN FASTEIGNASALA
HeimilisfangFornubúðir 10, 220 HafnarfirðiSími866 7070 / 571 7070

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑