fasteignasölur.is
Hrísholt 10
Opið hús 15. sept. kl. 17:00–17:30
1 af 53

Um eignina

Glæsilegt einbýlishús með miklu útsýni teiknað af Kjartani Sveinssyni á tveimur hæðum með tvöföldum innbyggðum bílskúr við Hrísholt í Garðabæ.  Húsið stendur ofan við götu með stórum suður garði. Húsið er vel skipulagt.  Stór lóð er í kringum húsið.  Stutt göngufæri á fallegum stígum er í Smáralind og fjölbreytta þjónustu í kring. Eignin er laus við kaupsamning. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 272,5 fm. og þar af er innbygður bílskúr skráður 51,4 fm. 

Neðri hæð:  Forstofa/anddyri, hol með steyptum stiga, baðherbergi með gufu, þvottahús, geymsla og innbyggður tvöfaldur bílskúr.
Efri hæð:  Alrými, stofur, eldhús, þrjú herbergi, tvö baðherbergi og útsýnis svalir.

Nánari lýsing neðri hæðar:
Forstofa er flísalögð með skáp. Innangengt er í bílskúrinn úr forstofunni. 
Hol með steyptum stigi upp á efri hæðina, teppi á gólfi.  
Baðherbergi með sturtu, gufubaði og salerni. Flísar á gólfi og hluti veggja. 
Þvottahús rúmgott með glugga, vaskur og steinn á gólfi. 
Geymsla rúmgóð með glugga sem hægt væri að nýta sem herbergi.
Bílskúr er með tvennum innkeyrsluhurðum, hliðargluggar og er innangengt í hann úr forstofunni alls 51,4 fm. 

Nánari lýsing efri hæðar:
Sofa og borðstofa rúmgóðar og bjartar með miklu útsýni, frístandandi arinn og teppi á gólfi. Útgengt er út á stórar svalir með miklu útsýni úr stofunni. 
Eldhús með upprunalegri innréttingu, eldavél, eldhúskrókur og vínilflísar með kork áferð á gólfi. Inn af eldhúsi er búr. 
Búr með innréttingu, gluggar og dúkur á gólfi. 
Hjónasvíta með rúmgóðu hjónahebrergi, fataherbergi og baðherbergi. 
Hjónaherbergi rúmgott með gluggum á tvo vegu og parket á gólfi. 
Fataherbergi er með opinni innréttingu og parket á gólfi. 
Baðherbergi með sturtu, vaskur, salerni, gluggi og flísalagt í hólf og gólf. 
Svefnherbergi II með parketi á gólfi. 
Svefnherbergi III er í dag opið með parketi. Auðvelt er að setja vegg og hurð til að nýta það sem svefnherbergi. 
Baðherbergi mjög gúmgott með baðkari, tvennum vöskum, gluggar, salerni, skolskál og flísar á gólfi, marmari á veggjunum.

Tenging hefur átt sér stað á  Hnoðraholtsbraut við Arnarnesveg í Kópavogi sem hefur í för með sér mjög góðar samgöngur. Stutt göngufæri er niður í Hofstaðaskóla og FG.  Fjölnota íþróttahús í Vetrarmýrinni er í næsta nágrenni og hafin er mikil stækkun á íbúðahverfinu í Hnoðraholti. 

Allar nánari upplýsingar veitir Kristján Baldursson hdl. og löggiltur fasteignasali í síma 8673040 og á netfangið kristjan@trausti.is eða Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 og á netfanginu gudbjorg@trausti.is

 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Hrísholt 10

210 Garðabær
219.900.000 kr.807 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 3 bað
Byggingarár1982TegundEinbýlishúsStærð272,5 m²Herbergi5FasteignanúmerF20706692Fasteignamat186.750.000 kr.Brunabótamat144.750.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 53 myndir

Upp ↑