fasteignasölur.is
Sambyggð 16
1 af 20

Um eignina

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali 891 8891 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu Sambyggð 16 íb. 104, Þorlákshöfn.  Góð og virkilega snyrtileg þriggja herbergja 73,3 fm íbúð með sérinngangi og geymslu á jarðhæð. Frábær fyrstu kaup.
Húsið var byggt árið 2002 úr forsteyptum einingum sem eru steinaðar að utanverðu.   Snyrtileg timburverönd sem er sérafnotaflötur og skjólgirðing. Heitur pottur á sólpalli fylgir með.


Innra skipulag: Forstofa með fata/tækja skáp. Eldhús og stofa í opnu rými, snyrtileg innrétting með endurnýjaða efri skápa.  Innfelldur ísskápur og uppþvottavél fylgir.  Útgengt á verönd með heitum potti úr stofu. Tvö svefnherbergi annað með fataskáp.  Flísalagt endurnýjað baðherbergi með sturtuklefa, innréttingu og upphengdu wc.
Hiti er í gólfum með stýringum. Sérgeymsla á jarðhæð og sameiginleg þvott, hjóla og vagnageymsla.
Virkilega snyrtileg íbúð sem hefur talsvert verið endurnýjuð á undanförnum árum og má þar nefna gólfefni, baðherbergi, eldhús að hluta og settir hafa verið upp hljóðveggir í nokkrum rýmum.  Rafhleðslustöð í umsjá húsfélags á bílaplani.  Í forstofu er tækjaskápur þar sem gert er ráð fyrir þvottavél/þurkara.

Góð og snyrtilegt íbúð. Stutt í skóla og leikskóla.

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                                                                          
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Sambyggð 16

815 Þorlákshöfn
46.900.000 kr.640 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2002TegundFjölbýlishúsStærð73,3 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22634644Fasteignamat41.250.000 kr.Brunabótamat45.650.000 kr.
Skráð hjá
HÚS fasteignasala
HeimilisfangAusturvegi 26, Selfoss, Strandgötu VestmannaeyjumSími497-1155

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑