fasteignasölur.is
SPÁNAREIGNIR - Mar de Cristal
1 af 17

Um eignina

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR LÚXUSBÚÐIR VIÐ MAR MENOR* *STÓR SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR OG LÍKAMSRÆKTARAÐSTAÐA* 


Fallegar 4ja herbergja efri/neðri hæðir í nýju fjölbýli í Mar de Cristal, litlum strandbæ við sunnanvert Mar Menor innhafið. Um er að ræða fjölbýli á 2 hæðum og íbúðum á jarðhæð fylgir sér verönd/garður með útgengi beint út í sundlaugargarð og penthouse íbúðum fylgja stórar svalir og þaksvalir. Stæði í bílakjallara og sér geymsla fylgir öllum íbúðum. Aðeins um 1 klst. og 15 mín akstur frá Alicante flugvellinum og um 25 mín. akstur til Cartagena, skemmtilegrar spænskrar borgar með glæsta sögu og menningu. Aðeins um 15 mín akstur til Cabo de Palos, sem er sjarmerandi spænskur strandbær með frábærri aðstöðu til vatnasports og sem scuba kafarar elska.

Allar upplýsingar gefur Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869. 

Nánari lýsing:

Íbúðirnar eru með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Þær eru sérlega rúmgóðar og fallega innréttaðar. Eldhús, stofa og borðstofa sameinast í björtu og fallegu opnu rými með góðri tengingu við stórar svalir/verönd með frábærri aðstöðu til að njóta sólar og samveru með fjölskyldu og vinum. Íbúðum á jarðhæð fylgir sér verönd/garður og íbúðum á efstu hæð fylgja góðar svalir og sér þakverönd. Sameign er sérstaklega stór og glæsileg, stórar sundlaugar og græn svæði auk líkamsræktaraðstöðu. Glæsilegt útsýni yfir Mar Menor innhafið.

Verð miðað við gengi 1Evra = 145ISK
Íbúð með 3 svefnherb. + 2 baðherb. frá 520.000 Evrum (76.100.000 ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostn. vegna kaupanna.


Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, verönd, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, golf, strönd, líkamsrækt,
Svæði: Costa Calida, Mar Menor,
 

SPÁNAREIGNIR - Mar de Cristal

1000 Útlönd - Annað
76.100.000 kr.568 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð134 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF110090926
Skráð hjá
HeimilisfangHólmgarður 34, 108 Reykjavík, 108Sími893-2495

Allar 17 myndir

Upp ↑