fasteignasölur.is
Maríugata 1
Opið hús 12. sept. kl. 15:30–16:00
1 af 37

Um eignina

Hilmar Arnarson, löggiltur fasteignasali, ásamt RE/MAX kynna glæsilega 3ja herbergja útsýnisíbúð á 5. hæð við Maríugötu 1 í Urriðaholti, 210 Garðabæ.
Eignin er einstaklega vel staðsett í vönduðu og fallega hönnuðu álklæddu lyftuhúsi.
Íbúðin státar af gólfsíðum gluggum, suðvestur svölum og virkilega fallegu útsýni yfir Urriðavatn, golfvöllinn og til sjávar.

** Allar nánari upplýsingar veitir Hilmar Arnarson lgf. 823-3673 og Hilmar@remax.is **


Helstu kostir:
 - Glæsileg 3ja herbergja íbúð á 5. hæð
 - Suðvestursvalir
 - Fallegt og víðáttumikið útsýni
 - Gólfsíðir gluggar sem hleypa mikilli birtu inn
 - Tvö svefnherbergi
 - Sérþvottahús innan íbúðar
 - Vandaðar Nobilia innréttingar frá GKS
 - Innbyggð lýsing að hluta í alrými
 - Lyftuhús
 - Sérgeymsla á 1. hæð
 - Frábær staðsetning í Urriðaholti með náttúru og þjónustu í næsta nágrenni

Nánari lýsing eignar
Birt stærð eignarinnar er 81,7 fm samkvæmt FMR, þar af er sérgeymsla á 1. hæð 4,3 fm.
Forstofa:Harðparket á gólfi og rúmgóður fataskápur sem nær upp í loft.
Stofa og alrými: Bjart og fallegt alrými með harðparketi á gólfi. Gólfsíðir gluggar skapa mikla birtu og njóta má glæsilegs útsýnis úr íbúðinni. Útgengt er úr alrými á suðvestursvalir.
Eldhús: Vandað og nútímalegt eldhús með hvítum innréttingum, hvítum efri skápum og eyju. Eldhústæki eru frá AEG, þ.e. bakaraofn, innbyggður ísskápur með frysti, spanhelluborð og uppþvottavél. Háfur er frá Gíra.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru tvö og bæði með fataskápum upp í loft.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf með sturtu, innbyggðum blöndunartækjum og sturtuhaus, hvítri innréttingu, speglaskáp, handlaug, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Þvottahús: Sérþvottahús innan íbúðar með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla á 1. hæð, samtals 4,3 fm.

Vandaður frágangur
Maríugata 1 er einstaklega glæsilegt og vel hannað 24 íbúða fjölbýlishús á sex hæðum.
Við hönnun og frágang hefur verið lögð áhersla á vönduð efni og nútímalegt útlit.

Húsið er einangrað að utan og klætt með álklæðningu
Húsbyggjandi: Breiðahvarf ehf.
Aðalhönnuður: Úti Inni arkitektar – Baldur Svarvarsson
Verkfræðihönnun: Víðsjá
Raflagnahönnun: Lumex – Helgi Eiríksson

Ytri frágangur og lóð
Húsið er fullbúið að utan og lóð frágengin. Húsið er einangrað að utan og klætt með álklæðningu sem gefur því fallegt og nútímalegt yfirbragð.
Þak er að hluta steinsteypt með ásoðnum tjörupappa og einangrað með þrýstieinangrun.

Urriðaholt – náttúran við bæjardyrnar
Staðsetningin í Urriðaholti er afar góð og stutt er í fjölbreytta þjónustu, skóla og einstök útivistarsvæði.
Urriðaholtsskóli, grunn- og leikskóli hverfisins, er í næsta nágrenni. Golfvöllur Golfklúbbsins Odds er í göngufæri og stutt er í falleg útivistarsvæði við Urriðavatn, Vífilsstaðahraun og Heiðmörk.
Hér sameinast nútímalegt borgarlíf og nálægð við náttúruna á einstaklega fallegum stað.

Maríugata 1 er eign fyrir þá sem kunna að meta fallegt útsýni, mikla birtu, vandaðan frágang og frábæra staðsetningu í einu eftirsóttasta nýja hverfi höfuðborgarsvæðisins.

Maríugata 1

210 Garðabær
79.900.000 kr.978 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2023TegundFjölbýlishúsStærð81,7 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF25220231Fasteignamat75.050.000 kr.Brunabótamat56.550.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑