fasteignasölur.is
Bjarkarás 3
1 af 25

Um eignina

Hannes Steindórsson kynnir fallega og mikið endurnýjaða þriggja herbergja íbúð á neðri hæð í rólegu og fjölskylduvænu Ásahverfi í Garðabæ. 
Íbúðin er með sérinngangi, einstaklega mikilli lofthæð eða 2,80 m og góðri verönd.
 

Forstofa: Flísalögð forstofa með skápum frá Kvik.
Eldhús: Falleg eldhúsinnrétting frá Kvik með góðu skápaplássi. Ofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél.
Stofa og borðstofa: Bjartar og opnar stofur með góðri lofthæð. Úr stofu er gengið út á rúmgóða timburverönd til vesturs með skjólveggjum. 
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með stórri sturtu, glerskilrúmi og grárri innréttingu. Handklæðaofn og gluggi. 
Svefnherbergi 1: Rúmgott parketlagt svefnherbergi með eikarfataskápum. 
Svefnherbergi 2: Rúmgott parketlagt svefnherbergi með eikarfataskápum. 
Þvottahús: Sérstakt og flísalagt þvottahús innan íbúðar, með vaski í borðplötu og góðu hilluplássi.
Geymsla: Parketlögð geymsla innan íbúðar.
 
Þá er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign auk tveggja rafhleðslustöðva á sameiginlegu bílaplani. Húsfélagið er virkt og vel rekið auk þess sem sameign hússins hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum.
 
Staðsetningin er einstaklega góð, en stutt er í alla helstu þjónustu, þar á meðal skóla, íþróttamannvirki, sundlaug og verslanir. Þá er gott aðgengi að stofnbrautum í allar áttir.
Bjarkarás 3 er virkilega falleg, vel skipulögð og mikið endurnýjuð íbúð á frábærum stað í rólegu og eftirsóttu hverfi í Garðabæ.
Allar upplýsingar veitir: Hannes Steindórsson s.699-5008 hannes@fastlind.is
 
 

Bjarkarás 3

210 Garðabær
87.900.000 kr.891 þ./m²
Hæð2 svefn · 1 bað
Byggingarár2006TegundHæðStærð98,7 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22845244Fasteignamat86.300.000 kr.Brunabótamat54.900.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑