fasteignasölur.is
Birkiholt 1
Opið hús 12. sept. kl. 14:45–15:15
1 af 33

Um eignina

LIND fasteignasala og Páll Konráð kynna í einkasölu: Glæsileg og björt 2ja herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð á vinsælum stað á Álftanesi í Garðabæ.

* Dásamleg staðsetning á Álftanesi - sveit í borg
* Sérinngangur
* Suðursvalir með fallegu útsýni
* Hús byggt 2003
* Tveir leikskólar í göngufjarlægð
* Ein flottasta sundlaug landsins í göngufjarlægð

Fasteignamat fyrir árið 2027 verður: 64.700.000.

Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali,  S:820-9322, pall@fastlind.is.


Eignin skiptist í forstofu, stofu, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, þvottahús og geymslu. 

Nánari lýsing:
Sérinngangur af svölum. Gæludýrahald leyft.
Forstofa er rúmgóð með skápum. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með baðkari og snyrtilegri innréttingu.
Eldhús með innréttingu og góðum borðkrók. Opið að hluta til inn í stofu og borðstofu sem gerir rýmið mjög opið og bjart. Nýleg uppþvottavél getur fylgt með í kaupunum. 
Stofa og borðstofa er rúmgóð með útgangi út á suðursvalir, frábært útsýni að Bláfjöllum, Hafnarfirði og víðar.
Þvottahús er með borðplötu, skolvaski og pláss fyrir þvottavél og þurrkara.   
Á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og sér geymsla. 


Framkvæmdir síðustu ára samkvæmt seljanda:
2020 - Skipt um blöndunartæki - baðherbergi.
2022 - Nýtt parket og nýir gólf-listar – öll íbúðin. Nýr ofn og helluborð í eldhús. Nýr krani í eldhús. Nýir skápar í svefnherbergi. Nýjar gardínur í stofu. Nýr vatnslás í eldhúsi. Nýr sturtuhaus – baðherbergi. Veggir spaslaðir og málaðir. Loft málað. Allir glugga-karmar pússaðir upp og málaðir. Útidyrahurð og svalahurð pússaðar upp og málaðar.
2024 - Nýr vaskur, vatnslás og borðplata í þvottahúsi.
2025 - Nýtt harðparket, flísar í forstofu og endurnýjað innihurðar.

Viðhald – Birkiholti – Húsfélag.
2023 - Skipt um öll ljós í stigagangi. Grafið og tengt fyrir rafhleðslustaurum – búið að setja upp einn rafhleðslustaur – hægt að setja fleirri. Bílastæði merkt íbúðum.


Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali,  S:820-9322, pall@fastlind.is.

Eignin er vel staðsett miðsvæðis á Álftanesinu, stutt í skóla, leiksskóla, sundlaug, líkamsrækt og fleira. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. 

Birkiholt 1

225 Garðabær
65.500.000 kr.858 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2003TegundFjölbýlishúsStærð76,3 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22643144Fasteignamat63.100.000 kr.Brunabótamat39.400.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑