fasteignasölur.is
Karlsrauðatorg 4
1 af 31

Um eignina

Hannes Steindórsson og Lind fasteignasala kynna með stolti:
Einstaklega fallegt og vel staðsett einbýlishús við Karlsrauðatorg 4.
Búið er að taka allt húsið í gegn og endurnýja á mjög vandaðan hátt. Einungis fagmenn og sérfræðingar í uppgerð á gömlum húsum komu að verkinu.
Burðarvirki, þak, klæðning, gluggar, rafmagn, ofnar, lagnir, gólf, dren og meira til endurnýjað. Það sem haldið var í var eingöngu það sem hefur fegurðargildi að mati eiganda, bitar í lofti, gólfefni á stofu og stigi. 
Stuttur akstur á þrjú skíðasvæði, þyrluskíði á tröllaskaga, snjósleðaparadís og annarar útivistar.

Fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, kamína í stofu. Húsið er með gistileyfi II fyrir 8 manns sem hefur ekki verið nýtt.
Aðalhæð.
Forstofa: Flísalögð rúmgóð forstofa.
Baðherbergi: Við forstofu er baðherbergi með sturtu, salerni og handlaug í stíl við aldur hússins.
Úr forstofu er komið inn í hol, opið inn í stofu og eldhús frá holi.
Stofa og borðstofa: Rúmgóð stofa með fallegum upprunalegum viðar fjölum á gólfi, opið inní borðstofu með svarttri kamínu fyrir miðju.
Eldhús: Opið úr eldhúsi inn í borðstofu, viðarinnrétting með fallegri handlaug, innbyggður ísskápur ásamt gas helluborði, upprunarlegar fjalir á gólfi.
Efri hæð:
Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi á annari hæð, hol fyrir framan svefnherbergi.
Kjallari:
Sérinngangur í kjallara en einnig stigi milli hæða.
  
Baðherbergi: Í kjallara er annað baðherbergi í sama stíl og baðherbergið á aðalhæð, rými fyrir þvottavél og þurrkara auk geymslu..
Svefnherbergi: Eitt svefnherbergi í kjallara með litlu fataherbergi, svartir bitar í lofti.
Ath: Eignin er 12 fm minni en skráningin gefur til kynna, skúr sem er skráður hjá fmr er ekki til staðar.

Allar upplýsingar veitir : Gunnar Valsson lögg fasteignasali í s: 699-3702 eða gunnar@fastlind.is / Hannes Steindórsson s.699-5008 hannes@fastlind.is



 

Karlsrauðatorg 4

620 Dalvík
65.000.000 kr.484 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1909TegundEinbýlishúsStærð134,4 m²Herbergi6InngangurSérinngangurFasteignanúmerF215501436Fasteignamat36.300.000 kr.Brunabótamat70.390.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑