fasteignasölur.is
Baughús 41
Opið hús 14. sept. kl. 17:00–17:30
1 af 54

Um eignina

Kjöreign ehf., fasteignasala, Ármúla 21, Reykjavík, sími 533-4040 kynnir vandað og vel staðsett steinsteypt einbýlishús með tvöföldum innbyggðum bílskúr  við Baughús 41, Grafarvogi, Reykjavík.  Fallegt útsýni. Birt stærð er 232,4 fm. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og er á þremur pöllum. 
Lýsing. Forstofa, snyrting, hol, svefnherbergi. Gengið er upp veglegan stiga upp á efri hæð sem skiptist í sjóvarpsstofu, þrjú góð svefnherbergi og baðherbergi. Stigi er af þessari hæð upp á efri hæðina og þar er lokað eldhús með búri innaf, borðstofa, stofa og sólskáli. Góðar vestursvalir með fallegu útsýni.
Nánari lýsing. Skápar í herbergjum. Vandað parket er á gólfum. Baðherbergi flísalögð, baðkar og sturta í öðru þeirra og sturta í hinu. Opnanlegir gluggar á báðum baðherbergjum. Aukin lofthæð á efstu hæðinni með fallegum viðarklæddum loftum. Margar hurðir úr húsinu út í garðinn og út á svalirnar. 
Bílskúrinn. Tvöfaldur innbyggður bílskúr, tvær innkeyrsluhurðir og hliðar gönguhurð. Innaf bílskúr er óskráð góð geymsla.
Stærðir: birt stærð neðstu hæðar er 28,7 fm., aðalhæðirnar eru 158,0 fm. og bílskúrinn er 45,7 m. Birt heildarstærð er 232,4 fm.

Sérlega gott og vel viðhaldið einbýlishús á hornlóð með fallegu útsýni. Tvöfaldur bílskúr. einstaklega gott og haganlegt fyrirkomulag. Stutt er í alla þjónustu og stofnleiðir. Gróið og vinsælt hverfi. Góð bílastæði við húsið.

Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar í síma 533-4040 eða á dan@kjoreign.is
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 eða asta@kjoreign.is
Dan Wiium lögm. og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 eða dan@kjoreign.is

 

Baughús 41

112 Reykjavík
179.800.000 kr.774 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1989TegundEinbýlishúsStærð232,4 m²Herbergi7InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20412619Fasteignamat157.500.000 kr.Brunabótamat136.550.000 kr.
Skráð hjá
Kjöreign
HeimilisfangÁrmúla 21, 108 ReykjavíkSími533-4040

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 54 myndir

Upp ↑