fasteignasölur.is
Hólmbergsbraut 5
1 af 22

Um eignina

HÓLMBERGSBRAUT 5 – VEL ÚTBÚIÐ ATVINNUHÚSNÆÐI MEÐ MILLILOFTI
Novum fasteignasala kynnir eignina Hólmbergsbraut 5, 230 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-06, fastanúmer 231-0951.

Um er að ræða vel útbúið atvinnuhúsnæði við Hólmbergsbraut 5 í Reykjanesbæ. Húsnæðið var byggt árið 2008 og er skráð sem eign 231-0951, merkt 01-06. Birt stærð eignarinnar er 129,9 m² auk um 40 m² millilofts og er heildarstærðin því um 169,9 m². 

Eignin skiptist í rúmgóðan vinnusal með rafdrifinni innkeyrsluhurð og sérstakri inngönguhurð. Innst í salnum hefur verið útbúið afstúkað rými og þar innaf er endurnýjuð salernisaðstaða með sturtu. Á millilofti eru tvö afmörkuð rými sem nú eru nýtt sem eldhús og herbergi. Rýmin geta jafnframt hentað sem skrifstofa, kaffistofa, starfsmannaaðstaða eða geymsla. Bæði rýmin eru með gluggum sem opnast út í aðalrými eignarinnar.

Frá því að núverandi eigandi tók við eigninni hafa verið gerðar umfangsmiklar endurbætur á húsnæðinu. Sett var upp skilrúm, allt gólf slípað og málað og salernisaðstaðan endurnýjuð, þar sem sett var upp nýtt salerni og rýmið flísalagt. Á milliloftinu voru stúkuð af tvö rými fyrir eldhús og herbergi. Rafmagn hefur einnig verið endurnýjað að hluta. Meðal annars voru settir upp tíu þriggja fasa tenglar með lögnum frá rafmagnstöflu.

Burðarvirki hússins er heitgalvaniseruð stálgrind. Útveggir eru klæddir 60 mm yleiningum með pólýúretan-einangrun og Granite HDX-húðun. Þakið er borið uppi af heitgalvaniseruðum stálsperrum og er þakklæðning úr 60 mm yleiningum með pólýúretan-einangrun og Granite HDX-húðun. Þakhalli er um 7 gráður og þakrennur eru úr áli. Lofthæð í húsnæðinu er frá um 5 m upp í 6,35 m.

Gólf vinnusalarins er steypt og með niðurföllum. Innkeyrsluhurðin er um 3,5 m á breidd og 3,5 m á hæð og er búin rafdrifnum hurðaopnara. Gluggar eru úr PVC og samkvæmt eldri byggingarlýsingu um 600 × 800 mm. Gönguhurðir eru úr stáli og um 950 × 2.100 mm. Milliveggir eru úr stálvirki og klæddir 80 mm yleiningum með steinullareinangrun og brunavarnarefni, í lit RAL 9002. Í húsnæðinu er LED-lýsing, rafmagnstenglar, þriggja fasa rafmagn og útilýsing. Hitablásari er notaður til upphitunar. Lóðin umhverfis húsið er malbikuð.

Eignin býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika fyrir atvinnustarfsemi sem þarf rúmgóðan vinnusal, góða lofthæð, stóra innkeyrsluhurð, öflugt rafkerfi og aðstöðu fyrir starfsfólk.

Vélar, tæki og annar laus búnaður sem sést á ljósmyndum fylgir eigninni ekki nema um það verði sérstaklega samið. Mögulegt er að kaupa tiltekin tæki af seljanda samkvæmt nánara samkomulagi.

Nánari upplýsingar veitir Telma Sif Reynisdóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 7737223, tölvupóstur telma@novum.is.

Hólmbergsbraut 5

230 Reykjanesbær
Tilboð
Atvinnuhúsnæði1 bað
Byggingarár2008TegundAtvinnuhúsnæðiStærð129,9 m²Herbergi1InngangurSérinngangurFasteignanúmerF23109511Fasteignamat40.650.000 kr.Brunabótamat53.250.000 kr.
Skráð hjá
NOVUM fasteignasala
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími773-7223

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑